Niðurstöður voru kynntar á sameiginlegum viðburði SÍA og ÍMARK 19.nóvember sl.
Á hverju ári spyr EACA markaðsstjóra í Evrópu hvers þeir vænta af auglýsingastofunum sínum. Í ár er svarið óvenju skýrt: 94% segjast vilja samstarfsaðila en ekki söluaðila, en aðeins 26% eru mjög ánægð með stofuna sína. Bilið þar á milli er í raun efni allrar könnunarinnar.
Athyglisverðast fyrir íslenskan markað er að verðið er ekki aðalatriðið. 42% setja gagnsæi um verð og umfang í fyrsta sæti, en aðeins 23% kostnaðaraðhald. Það er óskýrleikinn sem er vandinn, ekki krónutalan. Á sama tíma segja aðeins 18% að stofurnar sýni frumkvæði „mjög vel“ og frumkvæðið er einmitt það sem svarendur segjast sakna mest. Hvað þýðir það?
Þriðja atriðið snýr að ferlunum sjálfum. 46% fóru í útboð eða pitch á síðustu tólf mánuðum og 65% þeirra skiptu um stofu í kjölfarið. Þetta eru dýrar ákvarðanir báðum megin borðsins, og kostnaðurinn birtist sjaldnast á sama reikningi. Þegar traust vegur þyngst við val á stofu er umhugsunarvert hversu oft leiðin að því trausti liggur í gegnum ferli sem reynir hvað mest á það.
Endilega kynnið ykkur niðurstöðurnar: annars vegar glærur frá kynningunni og hins vegar skýrslan sjálf.

