
Stofnsamþykkt
Nafn og tilgangur
Samtök og fyrirtæki á auglýsingamarkaði ákveða með samningi þessum að stofna sjóð í þeim tilgangi að styðja góð málefni í samfélaginu með afli auglýsinga. Sjóðurinn ber nafnið AUGA, sem er skammstöfun fyrir Auglýsingar, afl til góðra verka . Sjóðurinn er í eigu stofnenda en skal hafa sjálfstæðan fjárhag og kennitölu.
Stofnendur
Stofnendur AUGA eru: Samband íslenskra auglýsingastofa (SÍA), Samtök auglýsenda (SAU), ÍMARK – félag íslensks markaðsfólks og eftirtalin fjölmiðlafyrirtæki: Tímaritaútgáfan Fróði ehf., Morgunblaðið, Ríkisútvarpið og 365.
Hlutverk einstakra stofnenda AUGA
Hlutverk SÍA er að virkja auglýsingastofur innan sambandsins til þess að leggja sjóðnum lið með vinnu og þekkingu varðandi þau verkefni sem sjóðurinn ræðst í. Vinna SÍA-stofanna er sjálfboðavinna en sjóðurinn greiðir beinan utanaðkomandi kostnað þeirra við mótun auglýsingaherferða og auglýsingagerð. Þessi útlagði kostnaður er áætlaður 1/3 af heildarkostnaði við framleiðslu auglýsinganna. Stjórn SÍA sér um að fá stofur til að vinna að einstökum verkefnum sem sjóðurinn tekur að sér.
Hlutverk SAU og ÍMARK er að virkja auglýsendur til þess að leggja sjóðnum lið í formi fjármuna úr styrktarsjóðum eða af markaðsfé sínu. SAU og ÍMARK leggja endurgjaldslaust til vinnu við að kynna AUGA og afla fjár meðal auglýsenda.
Hlutverk fulltrúa fjölmiðla er að virkja fjölmiðlana til að leggja sjóðnum lið með því að birta auglýsingar frá honum á vildarkjörum. Fjölmiðlar leggja sjóðnum til birtingar á 1/3 af markaðsverði auglýsinga eftir nánara samkomulagi um birtingartíma hverju sinni.
Stjórn AUGA mun aðstoða stofurnar við að fá undirverktaka, svo sem framleiðendur sjónvarpsauglýsinga, prentsmiðjur og aðra til liðs við einstök verkefni á sem hagstæðustum kjörum.
Stofnfé, fjáröflun og fjárvarsla
Unnið skal að fjáröflun til sjóðsins á skipulegan og gagnsæjan hátt. Eigið fé skal byggt upp þannig að þriðjungur þess fjár sem aflað er hverju sinni verði lagður í höfuðstól sem einungis má skerða ef allir stjórnarmenn eru því samþykkir. Arði af höfuðstól ásamt 2/3 árlegrar fjáröflunar skal varið til verkefna á vegum sjóðsins.
Stjórn sjóðsins sér um að ætíð sé leitað hagkvæmustu leiða til ávöxtunar og velur fjármálafyrirtæki til þess að sjá um fjárvörslu sjóðsins.
Starfs- og reikningsár sjóðsins er almanaksárið. Eigi síðar en 1. mars ár hvert skal stjórnin leggja fram skýrslu um störf sjóðsins á liðnu ári og reikninga hans, endurskoðaða af löggiltum endurskoðanda.
Stjórn
Stjórn AUGA er skipuð níu fulltrúum, sem tilnefndir eru af stofnendum eins og hér segir:
SÍA 3 fulltrúar
SAU 2 fulltrúar
ÍMARK 1 fulltrúi
Fjölmiðlar 3 fulltrúar
Einfaldur meirihluti stjórnarmanna ræður úrslitum við ákvarðanatöku, m.a. um hvaða verkefni hljóta styrki.
Umsóknir og úthlutun
Á fyrsta fundi sínum eftir stofnun AUGA setur stjórnin reglur um umsóknir og úthlutun úr sjóðnum. Reglurnar skulu vera einfaldar og gagnsæjar. Taka má við umsóknum frá félagasamtökum eða sjálfstæðum hópum, sem vinna að góðgerðamálum. Fjármunum skal varið eftir málefnalegum og faglegum reglum sem stjórnin setur.
Samningsslit
Komi fram tillaga um að leggja sjóðinn niður skal hún lögð fyrir stjórn. Hljóti tillagan samþykki 2/3 hluta stjórnarmanna skal kosin skilanefnd með einum fulltrúa frá hverjum eigendanna.
Þær eignir sem kunna að vera í sjóðnum þegar hann er lagður niður skulu renna til góðgerðastarfsemi.
Reykjavík 24. febrúar 2005
f.h. Sambands íslenskra auglýsingastofa
Sverrir Björnsson
f.h. Samtaka auglýsenda
Bjarney Harðardóttir
f.h. ÍMARK, Félags íslensks markaðsfólks
Björn Víglundsson
f.h. Morgunblaðsins
Margrét Sigurðardóttir
f.h. Tímaritaútgáfunnar Fróða ehf
Páll Gíslason
f.h. Ríkisútvarpsins
Þorsteinn Þorsteinsson
f.h. 365
Pálmi Guðmundsson