Hvað er auglýsingastofa?

Auglýsingastofa er þjónustufyrirtæki á sviði markaðs- og auglýsingagerðar í víðasta skilningi og þjónar fyrirtækjum og stofnunum sem hafa vöru eða þjónustu sem þau þurfa að koma á framfæri við neytendur. En það er ekki allt og sumt.

Auglýsingastofa er líka vinnustaður þar sem ólíkir hæfileikar og persónuleikar koma saman til að vinna að lausnum á því sem nefnt var hér að ofan. Á auglýsingastofu er að finna markaðsfræðinga af ýmsu tagi, langmenntaða og hámenntaða eða sjálfmenntaða í hinum aðskiljanlegustu greinum markaðsfræðinnar.
Í þessum hópi eru sumir með sérmenntun, flestir úr erlendum skólum, á sviðum sem lúta að markaðsrannsóknum eða markaðsgreiningu, markaðssálfræði eða jafnvel markaðslífeðlisfræði. Við skulum kalla þetta fólk M-fólkið.

Á auglýsingastofu er einnig að finna hóp af fólki sem í daglegu tali eru nefndir teiknarar eða hönnuðir. Formlega útskrifast þeir sem grafískir hönnuðir eftir 4 ára nám í Listaháskóla Íslands, eða skólum erlendis, og kunna þá flest það sem lýtur að hönnun í tvívídd og sumir bæta við sig þrívíddarhönnun. Nátengdir þessum hópi er hugmyndafólk og textasmiðir sem alla jafnan hafa náið samstarf með hönnuðum í hverju verkefni. Þetta fólk skulum við kalla H-fólkið.

Hvað gerist á auglýsingastofu?

Þegar M-fólkið og H-fólkið kemur saman verður yfirleitt sprenging af einhverju tagi. Á milli þessara hópa er spenna sem tilkemur af því að hvor hópur fyrir sig þykist hafa meira vit en hinn hópurinn á því hvernig auglýsing á að vera. Þessi eilífa togstreita verður hins vegar til þess að útkoman verður oftast nær frumleg og skemmtileg.
Í báðum hópum eru prímadonnur og vargar, hugsjónamenn og niðurrifsmenn, hugmyndaríkir hæfileikamenn og jarðbundnir þverhausar sem ekki verður vikið úr stað. Þessi blanda af persónuleikum þarf dag hvern að syngja óperuna frá upphafi til enda, ljúka öllum verkum með glæsibrag og hníga svo niður í lok dagsins. Afrakstur hamagangsins sjá þeir svo í augnablik á síðum dagblaðanna eða í auglýsingatímum sjónvarpsstöðvanna, í bæklingastöndum bankanna, netborðum, strætóborðum og –skýlum eða heyra í útvarpi. Og næsta dag upphefst allt að nýju.

Færiband og suðupottur

Auglýsingastofu má líkja við færibandaframleiðslu; markmiðið er að viða að sér verkefnum til að vinna úr og skila frá sér í nýrri og frumlegri mynd. Við getum sagt að þetta sé í grófum dráttum framleiðsluferlið. En auglýsingastofa er miklu meira en þetta.

Auglýsingastofa er suðupottur hæfileikafólks, samfélag einstaklinga sem alla jafnan vinna undir miklu álagi og þurfa að skila úrvalsverki upp á hvern dag, stundum sami einstaklingur oft á dag. Margir hugir og hendur þurfa að koma að einu verki, segjum t.d. blaðaauglýsingu.

Ein stök blaðaauglýsingin byrjar sem pöntun frá viðskiptavini (hún hefst þó ekki síður sem ábending frá starfsfólki stofunnar til viðskiptavinar um þörf á auglýsingu). Markaðsfræðingur (eða tengill) tekur við pöntuninni. Um er að ræða ákveðna vöru eða þjónustu viðkomandi viðskiptavinar sem þarf að auglýsa, t.d. næsta föstudag. Pöntunin kemur stundum inn á síðustu stundu eða – um hádegi á fimmtudegi. Markaðsfræðingur kallar til hugmynda- og textamann ásamt hönnuði og saman setjast þeir yfir beiðnina. Þeir þekkja viðskiptavininn og þá vöru sem hann ætlar að auglýsa, jafnvel er til staðar ákveðið útlit sem hannað hefur verið fyrir ákveðið tímabil eða ákveðna vöru þessa viðskiptavinar.

Ekki ímynda þér að þessir aðilar setjist niður í rólegheitum og spjalli notalega sín á milli um hvernig auglýsingin eigi að vera. Þetta gerist allt á hlaupum út um alla stofu, menn tala hver við annan í síma og verða kannski að ýta öðrum verkefnum til hliðar til að koma þessu að. Því blaðaauglýsing sem á að birtast á föstudegi þarf að vera farin úr húsi kl. 16.00 á fimmtudegi – og það eru að minnsta kosti allt frá fimm til fimmtán eða fleiri mismunandi verkefni til viðbótar sem þurfa að fara út úr húsi þennan sama dag.

Hönnuðurinn situr og gnístir tönnum við tölvuskjáinn þegar markaðsfræðingurinn kemur og hefur skoðanir á útlitinu sem hönnuðurinn hefur sett upp. Sömuleiðis verður M pirraður á attitjúdi H vegna þess að M hefur áhyggjur af því að skilaboðin komi ekki nógu skýrt fram, en H hefur áhyggjur af að fólk muni ekki hafa áhuga á að skoða auglýsinguna nema hönnunin sé svona eða hinsegin. Ef vel tekst til mun hér eiga sér stað heit en vonandi málefnaleg og fagleg umræða sem báðir aðilar munu hafa lært nokkuð af þegar upp er staðið. Og haldi áfram að gera betri auglýsingar sem skila viðskiptavini stofunnar þeim árangri sem sóst var eftir í upphafi.