Viðaukar
Siðanefnd
Til þess að framfylgja framanskráðum siðareglum um auglýsingar skal sett á stofn siðanefnd. Í nefndinni eiga sæti þrír fulltrúar tilnefndir af Sambandi íslenskra auglýsingastofa, einn fulltrúi tilnefndur af Verslunarráði Íslands og einn fulltrúi tilnefndur af Neytendasamtökunum. Nefndin skiptir sjálf með sér verkum og setur sér starfsreglur.
Starfsreglur siðanefndar um auglýsingar
1. gr.
Siðanefnd er skipuð 5 mönnum. Skulu 2 tilnefndir af Sambandi íslenskra auglýsingastofa (SÍA), einn tilnefndur af Samtökum auglýsenda (SAU), einn tilnefndur af Viðskiptaráði Íslands (VÍ) og einn tilnefndur af Neytendasamtökunum (NS).
Ef einhver nefndarmanna á hagsmuna að gæta eða er í nánum tengslum við aðila kærumáls, skal hann víkja sæti og varamaður skipaður í hans stað.
2. gr.
Siðanefnd skiptir sjálf með sér verkum, velur sér formann, varaformann og ritara.
Nefndin skal halda gjörðarbók þar sem skráðar eru fundargerðir og afgreiðsla mála.
3. gr.
Hver sem er (einstaklingar, fyrirtæki eða stofnanir) getur kært til siðanefndar brot á Siðareglum um auglýsingar eða brot á öðrum reglum um auglýsingar. Einnig getur siðanefnd tekið mál til athugunar að eigin frumkvæði.
4. gr.
Kæra skal vera skrifleg og rökstudd. Hafi auglýsing birst á prenti, skal eintak af henni eða ljósrit fylgja kæru. Hafi auglýsing birst í útvarpi eða sjónvarpi, skal nákvæmlega tilgreint hvenær það var, um hvað auglýsingin fjallar og hvaða aðili auglýsti.
Kærur skal senda til skrifstofu Sambands íslenskra auglýsingastofa.
5. gr.
Siðanefnd getur afgreitt kærur með eftirfarandi hætti:
1) Ef siðanefnd telur auglýsingu ekki brjóta í bága við siðareglur, vísar hún kærunni frá með bréfi til kæranda og greinargerð til aðildarsamtaka siðanefndar.
2) Ef siðanefnd telur vera um minniháttar brot að ræða, fer nefndin fram á leiðréttingu auglýsingarinnar og sendir síðan greinargerð til aðildarsamtaka siðanefndar og svarbréf til kæranda.
3) Ef um meiriháttar brot er að ræða á siðareglum, skal siðanefnd fyrst fara fram á stöðvun birtingar og leiðréttingu auglýsingar. Jafnframt óskar siðanefnd eftir greinargerð frá ábyrgðarmanni auglýsingar. Ef neitað er að stöðva birtingu eða leiðrétta auglýsingu, skal aðilum boðið að leggja deiluefnið fyrir gerðardóm Viðskiptaráðs Íslands. Hafni aðilar gerðardómsmeðferð, getur siðanefnd ráðlagt kæranda málsókn fyrir almennum dómstólum. Siðanefnd skal senda greinargerð um málsmeðferð sína og afgreiðslu til aðildarsamtaka siðanefndar og til kæranda.
6. gr.
Siðanefnd er heimilt að birta úrskurði sína opinberlega. Nöfn aðila skulu þó ekki birt nema um meiriháttar brot sé að ræða og aðeins samkvæmt ákvörðun siðanefndar hverju sinni.

