Sérákvæði um börn
Auglýsingar og börn
Alþjóðaverslunarráðið hefur samþykkt eftirfarandi leiðbeiningar við siðareglur sínar um auglýsingar:
1. gr. Auðkenning
Vegna þess hve börn eru viðkvæm og til þess að auka áhrif 11. greinar siðareglnanna ætti að merkja auglýsingar og auglýsingaefni greinilega "Auglýsing" eða á annan jafntryggan hátt, ef hætta er á að villst verði á auglýsingum og öðru efni blaða og tímarita eða dagskrárefni hljóðvarps og sjónvarps.
2. gr. Ofbeldi
Í samræmi við grein 13.2 skal haft í huga að augýsingar mega ekki sýna ofbeldi þar sem það er andstætt lögum eða siðvenjum.
3. gr. Gildismat
Auglýsingar ættu ekki að rýra gildismat viðkomandi þjóðfélags með því að gefa í skyn að umráð eða notkun vöru veiti barni líkamlega, félagslega eða sálfræðilega yfirburði yfir jafnaldra sína, eða að það hafi öfug áhrif að vera án vörunnar. Auglýsingar ættu ekki að grafa undan valdi og áliti foreldra, ábyrgð þeirra, dómgreind og smekk, að teknu tilliti til ríkjandi gildismats á hverjum tíma.
4. gr. Öryggi
Í samræmi við 12. grein og grein 13.2 ættu auglýsingar ekki að innihalda yfirlýsingar með myndefni sem gæti orðið þess valdandi að börn komist í hættu, séu hvött til að hafa samneyti við ókunnuga eða sækja heim óvenjulega eða hættulega staði.
5. gr. Sannfæring
Auglýsingar ættu ekki að innihalda áskorun til barna um að telja aðra á að kaupa hina auglýstu vöru handa þeim.
6. gr. Framsetning
Í samræmi við 4. grein siðareglnanna ætti að gæta þess sérstaklega að tryggja að auglýsingar villi ekki um fyrir börnum hvað varðar rétta stærð, verðmæti, eðli, endingu og notagildi auglýstra vara. Sé aukahluta þörf (t.d. rafhlaðna) til að nota vöruna eða til að ná þeim árangri sem lýst er eða er sýndur (t.d. málning), ætti að gefa slíkt skýrt til kynna. Sé vara hluti af flokki, röð eða stærri heild (t.d. sería) ætti að taka slíkt skýrt fram, svo og hvar og hvernig megi afla sér þess sem á vantar. Auglýsingar ættu ekki að gera minna en efni standa til úr þeirri hæfni sem þörf er á til að nota vöruna. Þegar árangur af notkun vöru er sýndur eða honum lýst ætti auglýsingin að kynna einungis það sem eðlilega má ætlast til af barni á þeim aldri sem varan er ætluð.
7. gr. Verð
Hugmynd um verð á ekki að gefa þannig að börn ofmeti raunverulegt verðmæti vörunnar, t.d. vegna notkunar orðanna “einungis" eða “aðeins". Auglýsingar ættu aldrei að gefa í skyn að allar fjölskyldur hafi ráð á að eignast tiltekna vöru.

