Sannleiksgildi

4. gr. Sannleiksgildi
1. Auglýsingar skulu ekki innihalda staðhæfingar eða myndir sem líklegar eru til að villa um fyrir neytandanum, beint eða óbeint, með því að gefa eitthvað í skyn, halda eftir nauðsynlegum upplýsingum eða með því að nota tvíræða framsetningu eða ýkjur. Þetta snertir einkum:
a) Eðli söluvarnings, samsetningu hans, framleiðsluaðferð og framleiðslutíma, notagildi miðað við tilgang, notkunarsvið, magn, nafn upprunalegs framleiðanda og framleiðsluland.
b) Verð vörunnar og heildarkostnað við afhendingu.
c) Sérstaka söluskilmála, svo sem kaupleigusamninga og reikningsviðskipti (sjá Viðauka).
d) Afhendingarskilmála, skipti á varningi, endursendingu og viðgerðar- og viðhaldsþjónustu.
e) Ábyrgðarskilmála (sjá Viðauka).
f) Útgáfurétt og réttindi iðnaðaraðila, svo sem einkaleyfi, vörumerki, hönnunaraðferðir og módel, og vörunöfn framleiðenda.
g) Opinbera viðurkenningu eða gæðastimpil, einnig verðlaun af margvíslegu tagi.
2. Í auglýsingum skal ekki misnota niðurstöður rannsókna né heldur tilvitnanir í tæknileg eða vísindaleg rit. Tölfræðilegar upplýsingar skulu ekki notaðar þannig að þær gefi í skyn annað en það sem er sannleikanum samkvæmt. Ekki skal nota tækniorð á villandi hátt. Ekki skal nota óþarfa fræðiorð til að gefa í skyn að auglýstir eiginleikar séu vísindalega staðfestir, ef svo er ekki.

Til baka