Eftirlíkingar
10. gr. Eftirlíkingar
1. Við gerð auglýsingar skal ekki stæla uppsetningu ("layout"), texta, mynd, tónlistar- eða hljóðnotkun annarrar auglýsingar, né líkja eftir henni á annan hátt sem sennilegt er að villi um fyrir neytendum.
2. Þegar auglýsandi starfar í mörgum löndum og hefur áunnið vissri vöru nokkurt orð í einhverju landanna, skulu aðrir auglýsendur í hinum löndunum ekki stæla óheiðarlega auglýsingar hins fyrstnefnda, þar sem slíkt myndi koma í veg fyrir eðlilegt gagn hans af auglýsingaverki sínu annars staðar.
11. gr. Sérkenni auglýsinga
Auglýsingar skulu hafa greinileg sérkenni, í hvaða formi sem þær birtast og án tillits til hvar þær koma fram. Ef auglýsing birtist í fjölmiðli sem einnig dreifir fréttum eða stefnumarkandi greinum, skal sjá til þess að hún sé auðþekkjanleg sem auglýsing.

