Ábyrgð á auglýsingum
14. gr. Ábyrgð á auglýsingum
1. Ábyrgðin á því að ákvæðin í þessum reglum séu haldin hvílir á auglýsanda, semjanda auglýsingar eða auglýsingastofu, og einnig á útgefanda, eiganda fjölmiðils eða öðrum slíkum samningsaðila við birtingu.
a) Auglýsandi skal taka á sig heildarábyrgð vegna auglýsinga á sínum vegum.
b) Semjandi auglýsingar eða auglýsingastofa skal vinna verkið af fyllstu kostgæfni og á þann hátt að auglýsandi sé fær um að inna skyldur sínar af hendi sem honum ber.
c) Útgefandi, eigandi fjölmiðils eða hver annar aðili sem birtir, miðlar eða dreifir auglýsingum skal viðhafa réttmæta varúð er hann tekur við auglýsingum og kemur þeim á framfæri við almenning.
2. Allir sem starfa hjá fyrirtæki eða stofnun sem fellur undir einhverja af áðurnefndum þremur skilgreiningum og taka þátt í undirbúningi auglýsinga, gerð þeirra, birtingu eða miðlun til annarra ber skylda til, í samræmi við stöðu sína, að sjá um að reglunum sé fylgt.
15. gr.
Ábyrgðin á að reglunum sé fylgt nær yfir allt innihald og form auglýsingar. Þar telst með vitnisburður og yfirlýsingar ásamt myndefni, jafnvel þótt slíkt sé aðfengið.
16. gr.
Villandi auglýsing skal ekki réttlætt með því að benda á að auglýsandi hafi síðar séð neytendum fyrir réttri vitneskju.
17. gr.
Vörulýsingar og staðhæfingar um eðli eða myndameðferð skulu ávallt vera sannleikanum samkvæmar. Auglýsendur skulu fúsir til að leggja fram sönnunargögn án tafar sé þess óskað af aðilum sem sjá um að reglunum sé framfylgt.
18. gr.
Enginn auglýsandi, semjandi auglýsingar eða auglýsingastofa, útgefandi, eigandi fjölmiðils eða annar birtingaraðili skal taka þátt í birtingu auglýsingar ef hún hefur verið dæmd óframbærileg af þeim aðila sem sér um að reglunum sé framfylgt.
Aukaákvæði um auglýsingar á sérsviðum
Atriðin sem fjallað er um í þessum viðauka krefjast sérstakrar varúðar af hálfu auglýsenda gagnvart hinum endanlega neytanda og skal bera eftirfarandi ákvæði saman við almennu ákvæðin í reglunum.
A. Verslunarhættir
A. 1. Ábyrgð
Í auglýsingum skal ekki minnast á ábyrgð sem bótalaust ógildir eða skerðir réttindi sem kaupandi annars hefur. ÁBYRGÐ og önnur orð sömu merkingar mega því aðeins koma fram í auglýsingu að greint sé fyllilega frá öllum skilmálum. Ennfremur skal auglýsingin skýra á fullnægjandi hátt hvernig kaupandi getur leitað réttar síns, en slíkar upplýsingar skulu að öðrum kosti látnar honum í té skriflega við sölu eða með varningnum.
A. 2. Afborganir og annar greiðslufrestur
Auglýsingar sem geta um leigu er gangi upp í kaup, greiðslufrest eða hvers konar afborgunarskilmála fyrir neytendur skulu settar fram þannig að enginn misskilningur geti orðið um staðgreiðsluverð, útborgun, vexti og heildarkostnað þess sem auglýst er, né heldur um söluskilmála.
A. 3. Póstverslun
Auglýsingar á vörum til afhendingar í pósti skulu gerðar þannig að neytendur hafi ekki ástæðu til að verða óánægðir þótt þeir geti yfirleitt ekki skoðað vöru fyrir móttöku. Í lýsingu á póstsöluvarningi skal einkum:
a) gefa ljósa og nákvæma vitneskju um það sem stendur til boða, - verð, greiðsluskilmála, afhendingu (þar með teljast áætlaðar tímasetningar, burðargjald, áhætta við flutning og trygging). Einnig skal greina frá endursendingarskilmálum og full skýring skal gefin á öllu sem boðið er “ókeypis" og á öllum samningum um áframhaldandi viðskipti.
b) Tilgreina skal fullt nafn og varanlegt heimilisfang auglýsanda svo að neytendur geti haft samband við hann beint. Ekki skal taka til dreifingar auglýsingar sem gefa aðeins upp heimilisfang eða pósthólf.
A. 4. Ópantaðar sendingar
Ekki skal fást við auglýsingar á varningi sem dreift er án þess að pantanir hafi borist. Aðferðin sem vikið er að hér byggist á að senda ópantaða vöru og krefjast þess að viðtakandi greiði eða endursendi varninginn. Annað afbrigði er að gefa slíkt í skyn.
A. 5. Umboðssala (franchise)
Ef auglýst er eftir umboðssöluaðilum skal gæta þess að gefa ekki upplýsingar sem eru villandi, beint eða óbeint, um stuðning og sennilegan hagnað eða tilkostnað og fyrirhöfn. Fullt nafn umboðsbjóðanda og varanlegt heimilisfang skal tilgreint í auglýsingunni.
A. 6. Góðgerðarstarfsemi
Í auglýsingum sem bjóða til sölu varning til styrktar góðu málefni skal ekki gefa villandi upplýsingar um hver hlutur góðgerðarstarfseminnar.
A. 7. Sölukynning
Ef auglýsingar bjóða neytendum happdrætti eða samkeppni í því skyni að örva sölu, ef boðnar eru "gjafir" eða verðlaun eða ef auglýsing fjallar um kynningu er snýst um afsláttarmerki (trading stamps), sameinuð tilboð o.s.frv., skal í öllum tilvikum greina skýrt frá skilyrðum. Ekki skal villa um fyrir neytendum þannig að tilboðið verði óeðlilegra en efni standa til.
B. Sérstakar vörutegundir og þjónusta
B. 1. Lög eða reglur um einstakar vörutegundir eða þjónustu
Auglýsendur, semjendur auglýsinga og auglýsingastofur, svo og útgefendur og eigendur fjölmiðla skulu gæta þess að farið sé að lögum er kveða á um auglýsingar á einstökum vörutegundum og þjónustu, hvort sem um er að ræða sérstakar reglur um meðferð þeirra eða bann við auglýsingum.
B. 2. Lán og fjárfesting
Auglýsingar skulu ekki hafa orðalag sem líklegt er til að villa um fyrir almenningi hvað snertir lánakjör, eðli boðinna verðbréfa, raunverulegan eða áætlaðan hagnað, eða innlausnarskilmála.
B. 3. Atvinna og námskeið
1) Ef starf er auglýst skal ekki gefa villandi eða ýktar upplýsingar um eðli starfsins, launamöguleika, vinnuskilyrði eða húsnæðishorfur á staðnum.
2) Auglýsingar sem bjóða námskeið skulu ekki gefa villandi loforð um atvinnu né heldur gylla atvinnumöguleika eða væntanlegar tekjuhorfur þeirra er slík námskeið sækja. Ekki skal bjóða “próf" eða hæfnisvottorð sem ekki njóta viðurkenningar eða rangfæra gildi viðurkenndra prófa.
B. 4. Vinna í heimahúsum
1) Auglýsingar um vinnu í heimahúsum skulu gefa fullnægjandi lýsingu á starfinu og á væntanlegum tekjum af því.
2) Auglýsing skal greina á fullnægjandi hátt frá fyrirkomulagi ef verkþega er ætlað að kaupa vélar, hráefni eða panta efni til samsetningar, eða ef auglýsandi býðst til að kaupa framleiðsluna. Tilgreina skal fullt nafn auglýsanda og heimilisfang hans.
B. 5. Ferðalög
Auglýsingar um ferðalög af ýmsu tagi skulu orðaðar þannig að ólíklegt sé að neytandinn verði fyrir vonbrigðum. Þess vegna skal í kynningarefni gera nákvæma og rétta grein fyrir eftirfarandi atriðum:
a) fyrirtækinu sem stendur að ferðinni,
b) hvernig ferðast verður (tilgreina skal hvort um er að ræða leigu- eða áætlunarferð og ef kostur er skal gefa upp nafn fyrirtækis í fólksflutningum, tegund flugvélar eða annars farartækis og gæðaflokk farrýmis),
c) áfangastað og ferðaáætlun,
d) lengd ferðar (nákvæmlega) og dvalartíma á hverjum stað,
e) aðbúnaði á gististað og fæði sem boðið er,
f) hvers kyns aukatilboðum sem í boði eru (skemmtanalífi, kynnisferðum, o.s.frv.),
g) auglýstu heildarverði ferðalagsins (að minnsta kosti hámarks- og lágmarksverði) og kostnaðarliðum sem felast í því (flugvallarsköttum, ýmsum útgjöldum, fargjöldum á styttri leiðum, greiðslu fyrir burðarþjónustu, þjórfé o.s.frv.),
h) skilyrðum um afturköllun pantana.
B. 6. Hættulegur varningur
Ef auglýsingar fjalla um vörur sem hætta getur stafað af vegna hugsanlegra eiturverkana, eldfimi o.s.frv. - án þess þó að neytendur geti auðveldlega gert sér slíkt ljóst - skal gera grein fyrir áhættunni.
B. 7. Fasteignir, sala og leiga
1) Auglýsingar á þessu sviði, hvort sem um er að ræða sölu eða leigu á fasteignum, skulu ekki vera villandi eða ýktar að því er snertir:
a) lóðina sjálfa og allar byggingar á henni eða hús sem þar á að byggja,
b) eðli húsnæðisins innanhúss og utan (þar með telst húsbúnaður og þægindi), útlit byggingar og íbúðar, svo og umhverfi,
c) eignarrétt og formsatriði,
d) réttindi eiganda og annarra hlutaðeigandi aðila (rights and easements),
e) kröfur skipulagsnefnda bæjar- eða sveitarfélaga og aðrar skyldar reglur,
f) skatta, gjöld og skylda liði,
g) verð, greiðsluskilmála og lánafyrirgreiðslu.
2) Sérstaka varúð skal viðhafa ef um er að ræða auglýsingar um fasteignir í öðru landi. Í þeim tilvikum skal gæta þess að nákvæm og rétt lýsing sé gefin á fasteigninni og skal sú lýsing ná yfir öll atriði sem máli skipta, eins og að ofan greinir.

