ÞÖGNIN ROFIN -
Auglýsingasamkeppni SÍA


Auglýsingar sem hvetja fólk til að leita lausnar á vanda sínum með því að rjúfa þögnina og tjá sig.
SÍA efndi árið 2005 til auglýsinga-
samkeppni. Markmið auglýsing-
anna átti að vera að bæta líf fólks með því að stuðla að opnari samskiptum. Úrslit voru tilkynnt 8. apríl sama ár (sjá "Allar fréttir" neðst á forsíðu www.sia.is).
  • Dómnefnd skipuð erlendu auglýsingafólki valdi úr innsendum tillögum og verðlaunaði þá bestu (Besta herferð og besta staka auglýsing. Einnig ein sérstök verðlaun. 
  • Aðalverðlaun voru ferð til til Lundúna á viðburð sem tengist auglýsingafaginu.
  • Stefnt er að því að framleiða sigurtillöguna og birta í fjölmiðlum.

Viðfangsefnið:
Tjáningin, það að opna sig, að segja hug sinn og eiga opin og hrein samskipti við annað fólk, er grundvöllur þess að við þrífumst. Í myrkri þagnar vaxa vandamálin en fyrsta skrefið til að vinna á vanda er oft að tjá annarri manneskju hvað okkur býr í brjósti. Með því að draga þessi einföldu sannindi fram í dagsljósið, benda á ýmsar leiðir til úrbóta fyrir fólk sem á í vanda (hverjar sem ástæðurnar kunna að vera) og birta þau á áhugaverðan hátt í áhrifamikilli auglýsingaherferð, má hafa mikil og jákvæð áhrif á líf fólks.

Þögnin rofin: Hugmyndavaki herferðarinnar (Brief)
Auglýsingar sem hvetja fólk til að leita lausnar á vanda sínum með því að rjúfa þögnina og tjá sig.

Þátttakendur gerðu auglýsingar sem höfða til margra hópa eða einbeita sér að einu ákveðnu málefni þar sem opin samskipti hjálpa fólki.

Dæmi um vandamál:

  • Sálrænir erfiðleikar
  • Hverskonar fíkn
  • Kynferðisofbeldi
  • Líkamlegt ofbeldi
  • Andlegt ofbeldi
  • Geðsjúkdómar
  • Einelti
  • Félagsleg einangrun
  • Kynþáttamisrétti
  • Fordómar
Dæmi um leiðir sem standa fólki til boða til að tjá vanda sinn:
  • Að ræða málin við vin eða einhvern úr fjölskyldunni.
  • Að leita til sérfræðinga; skólaráðgjafa, sálfræðinga, félagsfræðinga eða annarra aðila sem eru bundnir þagnaskyldu.
  • Að hringja í hjálparsíma, t.d. 112 eða 1717.
  • Að leita til Kvennaathvarfsins eða unglingaathvarfs.
  • Að ræða málin á netinu á viðeigandi spjallþráðum.
  • Átak ungs fólks gegn þunglyndi meðal ungs fólks
...og svo framvegis.

Keppt í 2 flokkum:

- Besta herferðin
Í herferðum þurfti að skila inn a.m.k. þremur auglýsingum og ekki fleiri en fimm, fyrir einn eða fleiri miðla.

- Besta auglýsingin
Auglýsingin mátti vera fyrir hvaða miðil sem er.

Dómnefnd:
  • Hamish Pringle, framkvæmdastjóri IPA (Samtök auglýsingastofa í Englandi - formaður dómnefndar).
  • Alistair Campbell, Art Director hjá St. Lukes auglýsingastofu í London.
  • Nick Barham, stefnumótandi (Planning Director) hjá Karmarama auglýsingastofu í London.
Nánar um keppnina:
  • Íslenska var aðaltungumál keppninnar en keppendur skiluðu enskri útgáfu af auglýsingunum fyrir dómnefnd.
  • Dómnefndin valdi bestu herferðina og bestu auglýsinguna.
  • Auglýsingarnar máttu vera úr sama miðli eða sitt hvorum. Senda mátti sömu tillögur inn í flokkinn "Herferðir" og í flokkinn "Besta auglýsingin".
  • Tillögur voru sýndar á sýningu sem haldin var í apríl 2005 í Listasafni Reykjavíkur.
  • Dómnefndin áskildi sér rétt til að veita sérstaka viðurkenningu fyrir efni sem henni þótti skara fram úr.
  • Kynningarnefnd SÍA áskildi sér að auki rétt til að framleiða hvaða auglýsingu sem er.
  • Auglýsingar átti að framleiða af eða í fullu samráði við viðkomandi höfund.
  • Sýning með bestu innsendingum í keppnina var sett upp í London árið 2005.
  • Aðalverðlaun voru ferð til Lundúna, sigurvegari dvaldi í vikutíma á auglýsingastofunni Karmarama og kynnti sér starfið á stofunni. 
Form á skilum

- Prentauglýsingar
Dagblaðaauglýsingar, plaköt, tímaritsauglýsingar. öllum skilað á pappír í stærðinni A3.

- Sjónvarp.
Handritum skilað á pappír (teiknaðir myndarammar - 8x6 cm miðjusettir ásamt hljóð- og myndlýsingu). Fólki var frjálst að ganga lengra og gera "demó" eða samklipp og láta það fylgja með.

- Útvarpsauglýsingar
Handritum skilað á pappír. Leyfilegt að skila inn "demó" og láta það fylgja með.