Úrskurður siðanefndar SÍA í kæru VG á hendur Vefþjóðviljanum


ÁKVÖRÐUN

6. maí 2009

Siðanefnd SÍA barst þann 22. apríl sl. kæra Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs (VG) á hendur Vefþjóðviljanum. Kæran tilgreinir að Vefþjóðviljinn hafi birt blaðaauglýsingu í Fréttablaðinu 22. apríl sl. Í blaðaauglýsingunni er birt mynd af Steingrími J. Sigfússyni formanni VG, án leyfis, sem kærendur telja brot á 8. gr. siðareglna SÍA.

Ábyrgðamanni Vefþjóðviljans var samdægurs tilkynnt um efni kærunnar og gefinn kostur á að koma að sjónarmiðum kærða í málinu eigi síðar en 28. apríl sl. Ekkert andsvar barst.

Úrskurður:

Blaðaauglýsing Vefþjóðviljans í Fréttablaðinu þann 22. apríl brýtur í bága við 8. gr. siðareglna um auglýsingar sem og anda siðareglnanna, en þar segir : „Grundvallarhugmyndir siðareglnanna eru, að allar auglýsingar skulu vera löglegar, siðlegar, heiðarlegar og segja sannleikann. Auglýsing skal samin með tilliti til félagslegrar ábyrgðar og þess að gætt að viðteknum hefðum um sanngirni í samkeppni sé fylgt.“

Í ljósi þess að birtingum hefur verið hætt telur siðanefndin ekki ástæðu til að úrskurða um hvers háttar brot er að ræða skv. 5. gr. starfsreglna siðanefndar.