Smellið á myndina til að sjá stærri útgáfu

JÁKVÆÐ ÁHRIF OPINNA SAMSKIPTA" - Hljóðupptökur frá ráðstefnu á vegum SÍA
- Þýðing þess að einstaklingar eigi opin og jákvæð samskipti og bæti þannig líf einstaklinga í samfélaginu. -

Ráðstefna haldin 25. nóvember 2004 í Háskólanum í Reykjavík.

Sérfræðingar úr ýmsum áttum fluttu u.þ.b. 15 mín. erindi um opin/jákvæð tjáskipti fólks og hvernig það getur bætt einstaklinga/samfélag. Fyrirlestrarnir eru notaðir sem "hugmyndavaki" fyrir auglýsingafólk, grunnur að auglýsingasamkeppni og herferð sem hefur það markmið að kynna mikilvægi opinna og jákvæðra samskipta til að bæta líf einstaklingsins. Nánar verður sagt frá samkeppninni á næstunni á endurbættum vef SÍA.


Frumflytjendur:

Hljóðskrá I (mp3. 34,7mb)

00:02:30 - Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra 
- Samskipti á 3 tímaskeiðum.
00:19:40 - Elísabet Jökulsdóttir rithöfundur
- Silkisængurver og bla, bla, bla. Opin/lokuð samskipti.
00:51:35 - Guðrún Jónsdóttir, Stígamótum
- Þagað yfir leyndarmáli: Kynbundið ofbeldi.
01:16:30- 01:40:00 - Þórkatla Aðalsteinsdóttir sálfræðingur
- Grundvöllurinn að ólíkum tjáskiptum.

Hljóðskrá II (mp3. 27,9mb)

00:00:20 – Herdís Egilsdóttir kennari
– Hugur barna.
00:29:25 - Guðrún Frímannsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur.
- Að sjá barn. Hvernig við bregðumst við erfiðri aðstöðu barna.

01:00:00-01:17:00 – Hafliði Kristinsson fjölskylduráðgjafi,
- Samlíf fjölskyldunnar.

Hljóðskrá III (mp3. 24,6 mb)

00:00:45 – Magnús Diðrik Baldursson heimspekingur
– Persónuleg og opinber samskipti.
00:22:30 – Þórir Guðmundsson, talsmaður Rauða krossins
– Starf Rauða krossins; Hjálparsíminn 1717 o.fl.

00:41:27 - 01:10:00 – Felix Bergsson, talsmaður samkynhneigðra.
– Staða samkynhneigðra Íslendinga.

Erindi haldin á hádegisfundi SÍA á Sólon 14. desember 2004 um ”jákvæð áhrif opinna samskipta“:

Sigursteinn Másson (PDF)
Þorvaldur Þorsteinsson (PDF)