Verðupplýsingar



Samkeppnisstofnun

Reglur um verðupplýsingar í auglýsingum



Þegar verðupplýsingar eru gefnar í auglýsingum til neytenda verður að gefa þær með eftirfarandi hætti:


1. gr.

Uppgefið verð skal vera endanlegt verð til kaupanda.


2. gr.

Mælieiningaverð.

Þegar söluverð vöru er birt í ritaðri eða prentaðri auglýsingu skal einnig tilgreina mælieiningaverð.


3. gr.

Útsala auglýst.

Þegar útsala er auglýst eða verðlækkun þarf að koma fram hvert hið upprunalega verð vörunnar var. Þá kröfu verður að gera að borið sé saman sambærilegt verð fyrir útsölu og á útsölu.


4. gr.

Ef einhverjar upplýsingar eru gefnar í auglýsingum um greiðslukjör eða afborganir skulu eftirfarandi upplýsingar koma fram:


4.1
Staðgreiðsluverð.


4.2
Heildarupphæð sem greiða skal, þ.e. samtala höfuðstóls, vaxta og kostnaðar, miðað við tiltekinn lánstíma.



Samkeppnisráð hefur sett reglur þessar til þess að koma í veg fyrir að upplýsingar um verð í auglýsingum séu rangar, ófullnægjandi eða villandi, sbr. 21. gr. samkeppnislaga nr. 8/1993 og eru þær settar með heimild í 30. gr. laganna.



Reykjavík, 13. janúar 1995

SAMKEPPNISSTOFNUN