Dómnefndarstörf í auglýsingasamkeppni SÍA, "Þögnin rofin", fóru fram í London í síðustu viku, sama dag og Stuðmenn hljóðtékkuðu Royal Albert Hall. Dómnefndarmenn voru þrír; Hamish Pringle, framkvæmdastjóri IPA (Samtaka enskra boðskiptafyrirtækja), Alistair Campbell, Art Director hjá St. Lukes auglýsingastofu í London og Nick Barham, yfirmanns stefnumótunar (Creative Planning) hjá Karmarama auglýsingastofu í London. Dómnefndarstörf gengu vel, enda greinilega vanir menn á ferð. Það tók þá tæplega 3 klukkustundir að komast að samkomulagi um sigurvegara (Besta herferð og Besta einstaka auglýsing – sem taka mátti úr öllum innsendingum) og sömuleiðis velja tvenn "Sérstök verðlaun" og samtals 10 bestu innsendingarnar.

