ÁKVÖRÐUN
6. maí 2009
Siðanefnd SÍA barst þann 21. apríl sl. kæra Vinstrihreyfingarinnar– græns framboðs (VG) á hendur Sjálfstæðisflokknum í Norðvesturkjördæmi. Kæran tilgreinir að Sjálfstæðisflokkurinn í Norðvesturkjördæmi hafi birt blaðaauglýsingu í fjölmörgum svæðismiðlum í Norðvesturkjördæmi. Í blaðaauglýsingunni er birt mynd af Steingrími J. Sigfússyni formanni VG, án leyfis, sem kærendur telja brot á 8. gr. siðareglna SÍA.
Formanni kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokks í Norðvesturkjördæmi var samdægurs tilkynnt um efni kærunnar og gefinn kostur á að koma að sjónarmiðum kærða í málinu eigi síðar en 28. apríl sl. Var fresturinn lengdur til 4. maí sl. en andsvar barst ekki fyrr en að kvöldi 5. maí sl.
Fram kemur í andmælum auglýsingastofunnar Jónsson & Lemacks f.h. Sjálfstæðisflokks í Norðvesturkjördæmi að:
a) heimilt hafi verið að nota mynd af Steingrími J. Sigfússyni formanni VG þar sem myndin er tiltæk á vef alþingis og þar með aðgengileg fyrir hvern sem er í prenthæfri upplausn;
b) þar sem ekki sé verið að selja vöru eða þjónustu eigi 8. gr. siðareglna SÍA ekki við þar sem greinin eigi aðeins við hefðbundnar auglýsingar;
c) kosningaauglýsingar séu ekki hefðbundnar auglýsingar m.a. vegna þess að þær eru ekki merktar auglýsingastofu;
d) vegna þess að að myndbirting í framboðsauglýsingum hafi oft verið notuð án athugasemda hafi þessi myndbirting verið heimil.
Niðurstaða:
Nefndin fellst ekki á sjónarmið auglýsingastofunnar að heimilt sé að nota mynd af opinberri persónu í auglýsingaskyni án leyfis vegna þess að hún er aðgengileg á vefnum. Nefndin telur ljóst að 8. greinin eigi ekki aðeins við um auglýsingar á vöru og þjónustu heldur einnig framboðsauglýsingar. Siðareglurnar eru ekki afmarkaðar við að auglýsing sé merkt auglýsingastofu. Fordæmi sem ekki hefur verið tekið á breyta ekki ákvæðum siðareglna.
Úrskurður:
Blaðaauglýsing Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi sem birt var í fjölmörgum svæðismiðlum í Norðvesturkjördæmi brýtur í bága við 8. gr. siðareglna um auglýsingar sem og anda siðareglnanna, en þar segir : „Grundvallarhugmyndir siðareglnanna eru, að allar auglýsingar skulu vera löglegar, siðlegar, heiðarlegar og segja sannleikann. Auglýsing skal samin með tilliti til félagslegrar ábyrgðar og þess að gætt að viðteknum hefðum um sanngirni í samkeppni sé fylgt.“
Í ljósi þess að birtingum hefur verið hætt telur siðanefndin ekki ástæðu til að úrskurða um hvers háttar brot er að ræða skv. 5. gr. starfsreglna siðanefndar.

