Látum hvítu ljósin lifa áfram!
Trúfélögin á Íslandi hvetja landsmenn til að hafa kveikt á hvítu ljósunum áfram nú þegar jólahátíðin er á enda. Markmið verkefnisins er að halda ljósunum lifandi út febrúar og vilja trúfélögin þar meðauka birtuna í lífi okkar, nú þegar þjóðin á í vanda og skammdegið stendur sem hæst.

Það var samstarfshópur innan Ímark sem hafði frumkvæði að verkinu og lagði fram beiðni til AUGA, stuðningssjóðs samtaka og fyrirtækja í auglýsingaiðnaðinum. Auga samþykkti verkefnið og líta auglýsingarnar dagsins ljós núna á sunnudaginn í öllum helstu miðlum landsins.

Sjá auglýsingu...

Nánari upplýsingar veita Sverrir Björnsson, Auga s. 899 9994,
Elísabet Sveinsdóttir, formaður Ímark s. 840 7145 og
Halldór Reynisson, verkefnisstjóri Biskupsstofu s. 8561571.