Auglýsingaiðnaðurinn sameinast um sjóð sem styrkir auglýsingaherferðir um góð málefni.
Samband íslenskra auglýsingastofa, auglýsendur, samtök markaðsfólks og fjölmiðlar hafa sameinast um stofnun stuðningssjóðs, sjóðs sem styður gerð og birtingar auglýsinga fyrir góð málefni.
Sjóðurinn nefnist "Auga – auglýsingar, afl til góðra verka". Tilgangur sjóðsins er að styðja góð málefni í samfélaginu með afli auglýsinga.
Stofnendur AUGA eru eftirfarandi:
- Samband íslenskra auglýsingastofa (SÍA)
- Samtök auglýsenda (SAU)
- ÍMARK (Félag íslensks markaðsfólks)
- 365 prent- og myndmiðlar
- Morgunblaðið
- RÚV
- Fróði
Sérþekking á boðmiðlun í samfélaginu
Í auglýsingaiðnaðinum er að finna einstaka sérþekkingu á boðmiðlun í samfélaginu, þekkingu sem fyrirtæki og stofnanir nýta sér á degi hverjum til að efla sinn hag. AUGA er ætlað að gera samtökum sem sinna samfélagslegu hjálparstarfi kleift að ná betri árangri í starfi sínu með því að beita afli auglýsinga í þeirra þágu.
Það eru mörg málefni í samfélaginu sem mögulegt er að efla og styrkja með því að koma þeim í sviðsljósið og ná þannig betra sambandi við almenning eða einstaka hópa. Með því að beita fagþekkingu sinni við markaðssetningu og boðmiðlun getur auglýsingaiðnaðurinn og tengdir aðilar lagt þessum málefnum mikið lið. Stofur innan vébanda SÍA leggja til vinnu, auglýsendur fjármagn og fjölmiðlar leggja til birtingapláss.
Sjóðurinn mun auglýsa eftir umsóknum sem verða metnar faglega, á grundvelli þess hvar auglýsingar muni skila mestum árangri og hversu þörfin er brýn.
Auglýsingaiðnaðurinn vill þannig sinna samfélagslegri skyldu sinni og beita afli auglýsinga til að koma góðum málefnum á framfæri í íslensku samfélagi.
AUGA mun veita þeim sem sækja til sjóðsins aðgang að sérfræðiaðstoð við markmiðasetningar, markaðsgreiningar, strategíska mótun markaðsstarfs, skipulag aðgerða, hugmyndavinnu, auglýsingagerð, gerð birtingaáætlana, við miðlun og birtingu auglýsinga og mælingu árangurs. Mæling árangurs verður í samstarfi við Gallup á Íslandi.
Ekki verður afhent fjármagn til umsækjenda heldur fá umsækjendur nokkurs konar gjafsókn. Þeir fá auglýsingherferð um málefni sitt og fjármagn til birtinga auglýsinga í fjölmiðlum á hagstæðu verði. Stefnt er að því að safna 5 – 10 milljónum króna fyrsta árið. Þriðjungur verður eftir í sjóðnum þannig að hann mun eflast og styrkjast til góðra verka með árunum. Vonast er til að hægt verði að styrkja 1-2 málefni á ári með stórum kynningarherferðum.
- Hlutverk SÍA er að virkja auglýsingastofurnar innan sinna vébanda til að leggja sjóðnum lið með vinnu og þekkingu til þeirra verkefna sem sjóðurinn ræðst í.
- Hlutverk SAU og ÍMARK er að virkja auglýsendur til að leggja sjóðnum lið með fjármunum úr styrktarsjóðum eða af markaðsfé sínu.
- Hlutverk fulltrúa fjölmiðla verður að virkja fjölmiðlana til að leggja sjóðnum lið með því að birta auglýsingar frá honum á vildarkjörum.
Stjórn AUGA skipa 9 fulltrúar, tilnefndir af stofnendum:
- 3 fulltrúar SÍA.
- 2 fulltrúar SAU
- 3 fulltrúar frá fjölmiðlum
- 1 fulltrúi frá ÍMARK.

