Úrskurður siðanefndar SÍA vegna kæru á hendur Vodafone

Siðanefnd Sambands íslenskra auglýsingastofa (SÍA) tók á fundi sínum 11. ágúst til meðferðar kæru á hendur Vodafone hf. dags. 10. júlí 2008. Kæran tilgreinir ætluð brot á siðareglum SÍA með auglýsingum undir yfirskriftinni “skítt með kerfið” sem hafa birst í öllum helstu fjölmiðlum undanfarnar vikur, þar sem markmiðið er að kynna tilboð til viðskiptavina Vodafone.


Anna Sigríður Guðmundsdóttir, fulltrúi Fíton, vék sæti í nefndinni í þessu máli og í stað hennar sat Haukur Már Hauksson, teiknistofustjóri, auglýsingastofunni Pipar .


Kærandi telur fyrrgreindar auglýsingar brjóta í bága við 1., 7. og 13. gr. siðareglna SÍA þar sem textinn sé óguðlegur, ósiðlegur, brjóta í bága við almennt siðferði og vera óæskilegan.

Siðanefnd SÍA telur notkun blótsyrðis í áðurgreindum auglýsingu frá Vodafone ekki brjóta í bága við 1., 7. og 13. grein siðareglna SÍA. Nefndin telur að kæran eigi ekki við 7. og 13. grein þar sem hvorki er verið að hallmæla fyrirtæki eða samkeppnisvöru, né verið að misnota trúgirni barna eða skaða þau geðrænt eða siðferðislega.

Nefndin telur að notkun samskonar blótsyrða og þess sem fram kemur í umræddri auglýsingu sé orðin það almenn, bæði í daglegu tali fólks og í fjölmiðlum, að birting þess í auglýsingunni brjóti ekki í bága við almenna velsæmiskennd.