Siðanefnd úrskurðar í máli á hendur 365 miðlum ehf.
 Reykjavík, 1. nóvember 2007

 
Siðanefnd Sambands íslenskra auglýsingastofa (SÍA) tók á fundum sínum 17. og 23. október til meðferðar kæru á hendur 365 miðlum ehf. dags. 12. september 2007. Kæran tilgreinir ætluð brot á siðareglum SÍA með auglýsingum í formi dagskrárkynninga sem birtust á Stöð 2 í ágúst og september 2007, þar sem markmiðið var að kynna þáttinn Kompás og dagskrá Stöðvar tvö.


Samkvæmt beiðni kæranda vék Valgeir Magnússon hjá SÍA sæti í nefndinni í þessu máli og í hans stað sat Haukur Már Hauksson, teiknistofustjóri hjá Pipar (SÍA).


Kærandi telur að dagskrárkynningarnar brjóti í bága við siðareglur SÍA; 3.1. grein (um að auglýsingar skuli ekki að ástæðulausu höfða til ótta fólks), 8. grein (verndun einkalífs), 14. grein a- og c-liður (ábyrgð á auglýsingum) og 4. grein í kaflanum Auglýsingar og börn (öryggi).


Niðurstaða nefndarinnar er eftirfarandi:

Liður a) og e)
Nefndin fellur frá a) lið kæru er snýr að grein 3.1 um að auglýsingin sé að ástæðulausu að höfða til ótta fólks auk þess sem nefndin telur að kaflinn um auglýsingar og börn eigi ekki við um efni málsins og fellur því einnig frá e) lið kærunnar.
 
Liður b)
Siðanefnd telur að auglýsingarnar brjóti í bága við 8. grein siðareglna SÍA um verndun einkalífs þar sem ekki lá fyrir hendi samþykki kæranda til birtinga myndskeiðanna eftir sýningu þáttarins sjálfs sem myndskeiðið var klippt úr.


Nánar:
Að mati kærða er eðlilegt að birta myndbrot úr þeim þætti sem vakti athygli á síðasta vetri og að kærandi hafi með því að veita viðtal í tengslum við þáttinn veitt samþykki fyrir síðari notkun efnisins. . Þrátt fyrir að kærandi hafi samþykkt viðtal vegna umfjöllunar í umræddum þætti fellst nefndin ekki á að það feli í sér samþykki  fyrir notkun í öðum tilgangi, svo sem við kynningu þáttarins. Auglýsingin er þó ekki lengur í sýningu þegar þetta er ritað og því ekki þörf á úrbótum.


Kærðu telja að kæran eigi ekki að fá efnislega umfjöllun á vettvangi SÍA þar sem auglýsingin er ekki unnin á SÍA stofu og vegna þess að kærðu eru ekki aðilar að SÍA. Siðanefnd SÍA starfar á grundvelli siðareglna sem eiga að vera grundvallarmælikvarði fyrir alla aðila er starfa á sviði auglýsinga, jafnt auglýsendur, auglýsingastofur og fjölmiðla, sbr. a) og c) lið 14. greinar reglnanna. Reglurnar byggja á siðareglum Alþjóðaverslunarráðsins auk laga og reglugerða sem gilda hér á landi um auglýsingar á vörum og þjónustu.

 

Fyrir hönd siðanefndar
Kristín H. Guðmundsdóttir, verkefnastjóri SÍA (starfsmaður nefndarinnar)