SÍA orðin aðilar að SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

SÍA gerðust aðilar að SVÞ – Samtökum verslunar og þjónustu fyrir skömmu og hefur skrifstofu Samtakanna að Síðumúla 1 verið lokað í kjölfarið. SVÞ hefur ráðið til sín nýjan starfsmann, Kristínu Huldu Guðmundsdóttur sem mun halda utan um starfsemi SÍA. Starfsmenn SVÞ sinna margvíslegri þjónustu við félagsmenn. Þjónustan snýr bæði að einstökum aðildarfyrirtækjum svo og starfsgreininni í heild, allt eftir málefnum hverju sinni. Markmið SVÞ eru:

  • Að vera málsvari atvinnurekenda í verslunar- og þjónustufyrirtækjum
  • Að vinna að almennum, sameiginlegum hagsmunamálum aðildarfyrirtækja.
  • Að stuðla að framförum í verslun og þjónustu, bættum starfsskilyrðum, aukinni arðsemi og samkeppnishæfni.
  • Að þjónusta fyrirtæki á sviði kjaramála í samstarfi við Samtök atvinnulífsins, SA.