SÍA blessar ekki auglýsingar
Nokkrar umræður hafa átt sér stað undanfarið í fjölmiðlum um nýjar auglýsingar með Lalla Johns í aðalhlutverki sem Himinn og haf hafa gert fyrir Öryggismiðstöðina. Í frétt í Fréttablaðinu kom fram sá misskilningur að SÍA hafi lagt blessun sína yfir auglýsingarnar. Það er ekki rétt.

Starfsmenn Himins og hafs hafa aldrei borið auglýsingar undir starfsmann eða stjórn SÍA, enda er það ekki hlutverk SÍA að hafa nokkur afskipti af starfsemi auglýsingastofa fyrir þeirra viðskiptavini eða af einstökum herferðum.


Hlutverk SÍA
Samband íslenskra auglýsingastofa er samband 10 stærstu auglýsinga- og birtingastofa landsins. Tilgangur samtakanna er meðal annars að vinna að eflingu faglegar hæfni aðildarfyrirtækjanna, að annast almenna kynningarstarfsemi til þess að auka þekkingu og skilning á auglýsinga- og markaðsfræðum og starfsemi auglýsingastofa. Ennfremur að koma fram fyrir hönd aðildarfyrirtækjanna gagnvart opinberum aðilum, hagsmunasamtökum og hliðstæðum samtökum erlendis.