Pipar í útrás í Evrópu
Auglýsingastofan Pipar hefur hafið útrás til meginlands Evrópu með sameiningu við Reynders Reclame & Project Management í Hollandi http://www.reyndersadvertising.com. Fyrirtækin munu starfa undir sameiginlegu nafni Pipars og verða stjórnað frá Íslandi.

Mikil reynsla hjá Reynders
Reynders Reclame & Project Management hefur mikla reynslu af öllum hliðum hönnunar og markaðsmála og rúmlega 30 ára reynslu í að vinna fyrir fyrirtæki, m.a. í Hollandi, Belgíu, Þýskalandi, Sviss, Austurríki, Bretlandi, Ítalíu, Aruba - Curaçao og á Íslandi. Auk þess sinnir fyrirtækið náið mörkuðum í Sviss og Bretlandi og starfrækir verkefnastjórn í tengslum við ljósmyndun og kvikmyndatöku í Austurríki, Frakklandi, Portúgal, S-Ameríku, Bandaríkjunum og Afríku.

Fyrirtækið býr yfir mikilli reynslu af alhliða verkefnum en hefur einkum unnið fyrir lyfjageirann og hátæknifyrirtæki auk hönnunar á umbúðum fyrir framleiðslufyrirtæki. Fyrirtækið hefur einnig haft milligöngu um stór prentverk og frágang á ýmiss konar bæklingum fyrir Evrópumarkað á mörgum tungumálum.

Af íslenskum viðskiptavinum sem hafa nýtt sér sérþekkingu, þjónustu og sambönd fyrirtækisins má nefna Össur, Samskip, Akureyrarbær og No Name.

Rökrétt framhald hjá Pipar
Þessi sameining er rökrétt framhald af núverandi starfsemi Pipars og tekur mið af því að stór hluti viðskiptavina stofunnar eru fyrirtæki í útrás og sérfræðiþekking um erlenda markaði er þeim því afar mikilvæg. Má þar helst nefna: Marel,  TM-Software, CreditInfo Group, OpenHand, Maritech International, Blumaris, Geotek, Triton, SecurStore, Stracta, Maredis og Útflutningsráð Íslands auk fjölda annarra fyrirtækja sem vinna á innlendum og erlendum mörkuðum.

Sérþekking á erlendum mörkuðum meðal íslenskra auglýsingastofa er nauðsynleg. Með fyrirhugaðri sameiningu og stóraukinni þekkingu verður Pipar mun betur í stakk búinn til að þjónusta þau fyrirtæki sem reka og eru með starfsemi og þjónustu á meginlandi Evrópu.

Stórefld þjónusta Pipars
Pipar mun sem fyrr veita fyrirtækjum í útrásarhug víðtæka og stóreflda þjónustu í tengslum við hönnun, herfræði, markaðssetningu og ímyndarmál. Það er markmið stofunnar að bæta stöðugt þá þjónustu sem stofan veitir og stuðla að alþjóðlegu starfsumhverfi.

Ron Reynders, stofnandi Reynders Reclame & Project Management, er þekktur ímyndarsérfræðingur og mun þekking hans og reynsla einnig nýtast íslenskum viðskiptavinum Pipars til að ná enn betri árangri á heimamarkaði.

Sameiningin mun formlega taka gildi þann 15. maí og mun Ron Reynders vera staðsettur á skrifstofu Pipars frá og með þeim tíma. Önnur starfsemi og verkefnastjórn mun áfram vera í Hollandi og getur Pipar því boðið upp á milliliðalaus samskipti við prentsmiðjur og dreifingaraðila í tengslum við sérþekkingu á erlendum mörkuðum.

Það var Virtus - lögfræði-, fjármála- og bókhaldsaðstoð sem sá um sameininguna.