Blátt áfram auglýsingar vekja athygli
Bjarney R. Hinriksdóttir á Hvíta húsinu hefur unnið nýja auglýsingaherferð fyrir Blátt áfram (samtök sem berjast gegn kynferðislegri misnotkun á börnum). Herferðin er nú birt í fjölmiðlum og hefur vakið mikla athygli fyrir beinskeytt skilaboð og áhrifaríkar auglýsingar.

Anna Margrét Sigurðardóttir, einnig starfandi á Hvíta húsinu, gerði á síðasta ári herferð fyrir Blátt áfram sem vakti mikla athygli. Báðar herferðirnar eiga uppruna sinn í samkeppninni Þögnin rofin sem SÍA stóð fyrir árið 2005 meðal auglýsingafólks á Íslandi. Þar fengu tillögur Bjarneyjar og Önnu Margrétar sérstaka viðurkenningu.

Sjáðu sjónvarpsauglýsingu nýju Blátt áfram herferðarinnar með því að smella hér.