Bestu færeysku auglýsingarnar
Sett hefur verið á stofn samkeppni um bestu færeysku auglýsingarnar. Samkeppnin er haldin í samstarfi færeysku auglýsingastofusamtakanna (Reklamufelagnum) og viðskiptblaðsins Vinnuvitan. Fulltrúar frá SÍA og ÍMARK (Ingólfur Hjörleifsson og Jóhannes Ingi Davíðsson) taka þátt í dómnefndarstörfum keppninnar en fulltrúar frá Færeyjum hafa fylgst náið með hvernig fyrirkoumlagið er hér á landi. Keppnin er með sama sniði og Lúðurinn og Effie verðlaunin, þ.e. kosið er með hugbúnaði frá Outcome hugbúnaði. Keppt er í 10 flokkum, í tveimur umferðum. Einnig býðst almenningi í Færeyjum að velja bestu færeysku auglýsinguna í netkosningu.
Úrslit verða kynnt í lok apríl. Sjá nánar hér.