Nýlega var skrifað undir samning um nýtt form mælinga á lestri dagblaða hér á landi. Samningurinn snýst um símælingu á dagblaðalestri og netmiðlaheimsóknum sem Capacent Gallup mun framkvæma fyrir samstarfshóp um fjölmiðlarannsóknir. Í hópnum sem skrifaði undir samninginn eru SÍA og stærstu dagblaðaútgefendur landsins ásamt Birtingahúsinu, Góðu fólki auglýsingastofu og MediaCom Íslandi.
Mælingar verða í formi samfelldra símakannana í stað
dagbókarkönnunar eins og verið hefur. Nú er unnið að samningi um mælingar á
lestri helstu tímarita og vikublaða, í samvinnu SÍA og helstu útgefenda. Einnig
er unnið að gerð samnings um rafrænar mælingar á helstu ljósvakamiðlum.
Fagráð um útfærslu dagblaðamælinga
Sett verður á fót sérstakt 5 manna fagráð sérfræðinga, sem í
eiga sæti fulltrúar verkkaupa og verksala. Fagráðið verður samstarfshópnum til
ráðgjafar um útfærslu á samningnum. Gerðar verða mælingar á lestri dagblaða á
vegum aðila í samstarfshópnum, lestri á sérblöðum þeirra, netmiðlum og
efnisþáttum blaðanna og niðurstöðum skilað fjórum sinnum á ári. Svör við sérstökum
gæðaspurningum verður skilað einu sinni á ári.
Könnunin byggir á eftirfarandi úrtaki:
- Dagblöð (aðalblöð): 2400 svör í 12 vikur.
- Vikuleg sérblöð: 800 svör í 4 vikur af 12.
- Netmiðlar: 2400 svör í 12 vikur.
- Efnisþættir: Breytilegur fjöldi svara í 4 vikur af 12.
- Gæðaspurningar: 800 svörum úr netkönnun.
Helstu atriði í mælingaaðferð
- Lestur dagblaða verður mældur með samfelldum símakönnunum.
- Spurt verður um lestur dagblaða daginn áður (e. “day after recall”).
- Komi blöð ekki út daglega verður spurt um lestur á útgáfudag og daginn eftir útgáfudag.
- Spurt verður hvort blað var lesið eða því flett og hve lengi blaðið var lesið.
- Einnig verður spurt um áskrift eða hvort blöð hafi borist á heimili.
- Safnað verður 200 svörum á viku í 50 vikur á ári.
Mæling á
vikublöðum og vikulegum sérblöðum
- Mæling á sérblöðum og vikulegum sér- og fylgiblöðum aðalblaða verður gerð í símakönnun samhliða mælingu á dagblaðalestri.
- Spurt verður um lestur á síðustu 7 dögum, hve mörg af síðustu 4 tölublöðum og lestur á sl. 3 og 12 mánuðum.
- Mæling á minni sérblöðum verður valkvæð fyrir hvert blað.
Mæling
netmiðla
Notkun
netmiðla verður mæld með sama hætti og grunnmæling aðalblaða (”day after recall”),
hve oft netmiðill var heimsóttur á síðastliðnum 7 dögum og hvort netmiðill hafi
verið heimsóttur á sl. 1, 3 og 12 mánuðum.
Spurt
verður um aðgang að interneti á heimili, skóla eða í vinnu.
Gæðaspurningar
Safnað
verður gögnum í 4 vikur af 12 mælingavikum á ársfjórðungi og niðurstöður birtar
tvisvar á ári.
Mæling
efnisþátta
- Mæling efnisþátta dagblaða er valkvæð. Dagblöðin ákveða sjálf hvaða efnisþættir skuli mældir.
- Mældur verður lestur á efnisþáttum meðal þeirra sem lásu viðkomandi eintak af dagblaði.
- Safnað verður gögnum fyrir hvern efnisþátt í 4 vikur af 12 mælingavikum á ársfjórðungi.
- Fjöldi svara að baki hverjum efnisþætti verður breytilegur.
- Niðurstöðum á mælingu efnisþátta verður skilað samhliða lestri á dagblöðum.

