Auglýsingalæsi í íslenskum grunnskólum
Nú er unnið að því innan SÍA að kynna fyrir hagsmunaaðilum svonefnt Media Smart verkefni. Media Smart er “fjölmiðlalæsiverkefni” sem snýst f.f. um auglýsingar. Markmiðið með því er að veita börnum á miðstigi grunnskóla tól og þekkingu til að hjálpa þeim að skilja og túlka auglýsinga- og kynningarefni svo þau verði betur fær um að meta þetta efni á skynsaman máta, þau verði upplýstari um eðli og tilgang auglýsinga. Þau verði í raun gagnrýnni neytendur í nútíma samskiptaþjóðfélagi. Það sem af er hefur hugmyndin hlotið góðar viðtökur hjá hagsmunaaðilum.

Sjá nánar um Media Smart hér.

Media Smart® er hannað fyrir börn á aldrinum 6 til 11 ára. Það er nú notað víða í Evrópu í skólastofum grunnskóla og á heimilum. Notast er við fjölbreytt kennsluefni, á netinu, á geisladiskum og prentað kennsluefni.

Það er von SÍA að hægt verið að ná upp víðtæku samstarfi opinberra aðila og einkafyrirtækja en einnig með samtökum foreldra og skólafólks á borð við Heimili og skóla og félög fagfólks. Þar sem Media Smart hefur verið tekið upp í grunnskólum í Evrópu er það unnið og stutt af opinberum yfirvöldum og auglýsendum.