Könnun Capacent um horfur á auglýsingamarkaði
Á Markaðsdegi ÍMARK í febrúar síðastliðnum voru birtar niðurstöður úr könnun Capacent fyrir ÍMARK og SÍA um horfur á auglýsingamarkaði. Þetta var símakönnun unnin í byrjun febrúar með því að spyrja markaðsstjóra hjá 360 stærstu auglýsendum landsins.

Meðal annars völdu markaðsstjórarnir auglýsingastofu ársins og auglýsanda ársins. Fyrir valinu urðu Hvíta húsið og Glitnir. Hvíta húsið hefur hlotið þessi verðlaun frá upphafi þessarar könnunar. 


Skoðaðu könnunina með þvi að smella hér.