Herferð SÍA og samstarfsaðila (AUGA sjóðurinn) fyrir SAFT, um heilbrigða netnotkun, hefur vakið mikla athygli. “Gættu að hvað þú gerir á netinu - það sjá það allir.” Kannanir sem Capacent hefur gert fyrir AUGA sýna þetta ótvírætt:
Yfir 80% aðspurðra líka auglýsingarnar í herferðinni.
Rúmlega 70% aðspurðra sögðu að auglýsingarnar hefðu vakið viðkomandi til umhugsunar um málefnið.
Yfir 80% sögðu að auglýsingarnar hefðu komið málefninu vel til skila.
SAFT eru samtök um vitundarvakningu um jákvæða og örugga notkun barna, unglinga og fullorðinna á Netinu og í tengdum miðlum.
Það var starfsfólk á flestum SÍA stofum sem vann saman að gerð þessarar herferðar. Samstarfsaðilar í AUGA eru helstu fjölmiðlar landsins, ÍMARK og SAU ásamt Capacent. Vodafone er fjárhagslegur bakhjarl SAFT herferðarinnar
Herferðin snýst um að hvetja til heilbrigðari samskipta á netinu. (Sjáðu auglýsingarnar á www.sia.is/auga ásamt umfjöllun um SAFT og AUGA)
Auglýsingarnar sýna ungan dreng skella vafasamömum athugasemdum um félaga sinn á netið, hann kemst síðan að því að það eru allir að tala um þessar athugasemdir hans. Skilaboðin; “Gættu að hvað þú gerir á netinu - það sjá það allir.”
SÍA félagar sem unnu herferðina:
Greining og stefnumótun (í samvinnu við CAPACENT):
Kristján Schram (Íslenska auglýsingastofan)
Helgi Helgason (Pipar)
Sverrir Björnsson (Hvíta húsið)
Hugmyndavinna:
Björn Jónsson (Fíton)
Steinbjörn Logason H:N markaðssamskipti)
Sævar Sigurgeirsson (Himinn og haf)
Gerð herferðar: Fíton auglýsingastofa
Birtingavinna:
ABS (Jón Jóhann Þórðarson)
Fjárhagslegur bakhjarl: Vodafone
Markhópur verkefnisins er fyrst og fremst börn og unglingar í efri hluta grunnskólans, 10-16 ára, og foreldrar barna á þeim aldri. Einkunnarorð herferðarinnar eru: “Gættu að hvað þú gerir á netinu – það sjá það allir.”
Sjá nánar um AUGA og SAFT og auglýsingarnar: www.sia.is/auga
Auga er stuðningssjóður stofnaður af samtökum og fyrirtækjum í auglýsinga- og fjölmiðlafaginu með það hlutverk að styðja gerð og birtingar auglýsingaherferða fyrir góð málefni. Með virkum stuðningi eftirtalinna aðila eiga fjárlítil samtök kost á auglýsingaherferð í öllum helstu fjölmiðlum landsins, þeim að kostnaðarlausu.
Samstarfsaðilar SÍA í AUGA:
ÍMARK
SAU
365 ljósvaka- og prentmiðlar
Blaðið
Birtíngur
Morgunblaðið
RÚV
Skjárinn
Afa JC Decaux
Capacent rannsóknir (rýnihópar og auglýsingamælingar)

