Lúðurinn í augsýn

Lúðurinn, íslensku auglýsingaverðlaunin, verða afhent 2. mars næstkomandi að kvöldi Markaðsdagsins sem ÍMARK, félag íslensks markaðsfólks heldur árlega. ÍMARK leggur áherslu á að fá ár hvert virta sérfræðinga í markaðs- og boðskiptamálum til að halda fyrirlestur, innlenda sem erlenda. Tilnefndingar til Lúðursverðlauna verða kynntar í Morgunblaðinu fimmtudaginn 22. febrúar.


Dómnefnd
Í dómnefnd situr 21 manns, frá ÍMARK (8), SÍA (8), FÍT, Félagi íslenskra teiknara (3), Orðspori, félagi textagerðarfólks (1), og Félagi kvikmyndagerðarmanna (1). Í reglum ÍMARK um dómnefnd segir að skilyrði sé að SÍA fulltrúar starfi á stofum sínum sem hönnunarstjórar eða yfirmenn hönnunarsviðs eða gegni þar ábyrgðar/stjórnunarhlutverki. Frá ÍMARK séu yfirmenn markaðsmála fyrirtækja eða næstráðendur. Frá FÍT, Orðspori og F.K. skuli koma einstaklingar sem hafaumtalsverða reynslu og þekkingu á sínu sviði og auglýsingagerðar.Formanni dómnefndar er áskilinnréttur til að hafna einstökum dómurum á grundvelli skilyrða eða reynslu.


Úrskurðarnefnd
Að þessu sinni starfar sérstök úrskurðarnefnd sem valin er úr hópi dómara og fer formaður dómnefndar fyrir henni. Í úrskurðarnefnd sitja 3 aðilar, einn frá SÍA, einn frá ÍMARK og einn fulltrúi fyrir félögin Orðspor, FÍT og FK. Hlutverk úrskurðarnefndar er að tryggja að einstakir dómar sem sýna óeðlileg frávik geti ekki haft áhrif á lokaniðurstöðu og verði jafnvel gerðir ógildir ef úrskurðarnefnd þykir ástæða til.


Í Íslensku auglýsingaverðlaununum er árangur auglýsinga dæmdur út frá tveimur forsendum:í fyrsta lagi hversu snjöll er hugmyndin að auglýsingaefninu og í öðru lagi hversu vel er hugmyndin útfærð. Takmarkið með Lúðrinum er að verðlauna þær auglýsingar sem skara fram úr á Íslandi.