Effie verðlaunin veitt
Effie samkeppnin er nú komin á lokastig þar sem veitt verða verðlaun fyrir bestu auglýsingaherferðina 2006. Veitt verða verðlaun í tveimur flokkum samkvæmt reglum keppninar; Vörur og Þjónusta. Þeir sem hafa áhuga á að vera við verðlaunaafhendinguna á Nordica Hotel, þá hefst hún kl. 12:00 á föstudag 24. nóvember. Áhugasamir þurfa að skrá sig í sia@sia.is.
Forvitnilegur fyrirlestur
Á verðlaunaafhendingunni mun Patrick Collister, virtur auglýsingamaður frá Englandi; fyrrverandi Creative Director Ogilvy auglýsingastofunnar, flytja forvitnilegan fyrirlestur um samhengi skapandi vinnu í auglýsingum og árangurs af markaðsherferðum.
Þetta verður í annað sinn sem EFFIE keppnin er haldin hér á landi en sú fyrsta fór fram árið 2003. EFFIE verðlaunin eru veitt fyrir afburða árangur í auglýsinga- og markaðsstarfi.
Viðurkenning fyrir árangur í markaðsstarfi.
Effie verðlaunin eru viðurkenning fyrir auglýsingaherferðir, auglýsinga- og kynningarefni þar sem saman fer frjó og skapandi hugsun og næm tilfinning og þekking á skilyrðum þess að ná árangri í markaðssetningu á vöru og þjónustu. Effie verðlaunum er þannig ætlað að stuðla að markvissari og árangursríkari markaðssetningu.
17 herferðir í keppni
17 innsendingar bárust í keppnina að þessu sinni en EFFIE keppnin er nú haldin í annað sinn hér á landi. Að öllu jöfnu skal veita gull-, silfur- og bronsverðlaun. Það fer þó eftir niðurstöðum dómnefndar, mati hennar á gæðum herferða, hversu margar EFFIE styttur eru veittar. Í dómnefndinni sitja forkólfar í íslensku viðskiptalífi ásamt fulltrúum á SÍA auglýsinga- og birtingastofum.
Innsendingar í EFFIE keppnina 2006:
Vara:
Bernhard: 4x4xCR-V (Honda)
Happdrætti DAS: Það er gott að eldast
Happdrætti SÍBS: Takk
Íslensk getspá/Lottó: Lýður Oddsson
Olís: Ævintýraeyjan Ísland
Toyota á Íslandi: Toyota - Aygo
Þjónusta:
Avion Group: Íslensk sókn um allan heim
Glitnir: Ímyndarherferð Glitnis
Já: Gulu síðurnar
KB banki: Nám er lífsstíll (fjármálaþjónusta fyrir námsmenn)
Netbankinn: Það hefur aldrei verið auðveldara að gefa (ABC kort)
Pósturinn: Láttu Póstinn sjá um allan pakkann
Síminn: Sama hver staðan er – þú getur alltaf hringt kollekt
Sjónarhóll: Sérstök börn til betra lífs (Ráðgjafamiðstöð fyrir langveik börn)
Sorpa: Átak 2004
Spron Verðbréf: Ekki bara spari að spara
TM: Ef þú ert tryggður – þá færðu það bætt

