Frestur í innsendingum í EFFIE keppnina
Innsendingarfrestur fyrir þá sem hyggjast taka þátt EFFIE keppninni í ár rennur út á morgun, 1. nóvember. Samt er ekki öll von úti enn. Hægt er að sækja um framlengdan frest, til 8. nóvember, með því að greiða 10.000 kr. aukalega fyrir hverja innsendingu. Sótt er um þennan frest með því að senda tölvupóst til Outcome sem sér um mótttöku innsendinga í keppnina fyrir hönd SÍA. Tölvupósturinn er thordur@outcome.is. Síminn hjá Outcome er 533 1440.
Nánar um EFFIE keppnina á www.effie.is.