SÍA kynnir Touchpoints á Íslandi
Í síðustu viku (26.10) kynnti Lynne Robinson, rannsóknastjóri hjá IPA (samtök enskra auglýsingastofa), rannsóknaverkefnið Touchpoints (http://www.ipatouchpoints.co.uk/index.php) hér á landi. SÍA bauð Robinson hingað til lands til að kynna Touchpoints og bjóða upp á vettvang til að ræða það nýjasta í fjölmiðla- og lífsstílsrannsóknum. Til fundarins var boðið hagsmunaðilum og þeim sem hugsanlega hefðu áhuga á málinu. Smelltu hér til að kynna þér það sem Robinson hafði að segja (Powerpoint skjal).

