Mixa sameinast Pipar

Auglýsingastofurnar Mixa og Pipar hafa sameinast undir nafni Pipars. Rekstur beggja stofa hefur gengið mjög vel og hafa þær verið í mikilli sókn á auglýsingamarkaðnum.
Sameinað fyrirtæki mun verða með 380 milljónir í veltuumsvif á ársgrundvelli og skipar það sér því í sess með fimm af stærstu auglýsingstofunum innan SÍA.

Mixa er þekktast af sinni sérkunnáttu á sviði hönnunar, uppbyggingar vörumerkja og ímynd fyrirtækja en styrkur Pipars byggist á markaðsráðgjöf, stefnumótun, almannatengslum og auglýsingagerð.

Sameinað fyrirtæki býr yfir mjög öflugu og reynslumiklu fólki á sviði auglýsinga- og markaðsmála með mikla þekkingu á ímyndarmálum, uppbyggingu og mótun vörumerkja ásamt almannatengslum, gerð sjónvarps- og útvarpsauglýsinga, almennri grafískri hönnun og þekkingu á fjölmiðlamarkaðnum. Breidd þeirrar þjónustu sem sameinuð stofa veitir verður þess vegna með því besta sem gerist á markaðnum.


Halla Guðrún Mixa verður framkvæmdastjóri hönnunarsviðs. Framkvæmdastjóri Pipars verður Valgeir Magnússon og mun stjórn fyrirtækisins verða skipuð þeim Hákoni Ísfeld Jónssyni formanni, Valgeiri Magnússyni, Höllu Guðrúnu Mixa og Sigurði Hlöðverssyni.


Helstu starfsmenn verða:

Valgeir Magnússon, viðskiptafræðingur, framkvæmdastjóri, ráðgjöf, almannatengsl og hugmyndavinna

Halla Guðrún Mixa, BA FÍT, ráðgjöf og framkvæmdastjórn hönnunarsviðs

Hákon Jónsson, MBA, ráðgjöf og stefnumótun

Helgi Helgason, BA, ráðgjöf, almannatengsl og hugmyndavinna

Sigurður Hlöðversson, ráðgjöf, almannatengsl og hugmyndavinna

Haukur Már Hauksson formaður FÍT, ráðgjöf, grafískur hönnuður og teiknistofustjóri

Selma Rut Þorsteinsdóttir, BA FÍT, ráðgjöf, grafískur hönnuður, hönnunarstjóri

Guðrún le Sage de Fontenay FÍT, grafískur hönnuður

Jóhanna Svala Rafnsdóttir, BA FÍT, grafískur hönnuður

Jón P. Ásgeirsson, cand.mag., textagerð, hugmyndasmíði og almannatengsl

Tómas Ingi Ragnarsson, BA FÍT, grafískur hönnuður

Marcel E. Deelen, vefhönnuður

Alexandra Buhl, BA, grafískur hönnuður

Sigrún Lilliendahl, BA FÍT, grafískur hönnuður

Gunnar Guðbjörnsson, ljósvakahönnuður