Auglýsingastofan Jónsson & Le'macks hefur gengið í raðir SÍA. Jónsson & Le'macks er öflug auglýsingastofa (www.jl.is) sem hefur vaxið mjög hratt undanfarin misseri og náð góðum árangri með viðskiptavinum sínum frá því hún var stofnuð árið 2003. Fyrir í SÍA eru 9 af stærstu auglýsinga- og birtingastofum landsins.
Starfsmenn Jónsson & Le'macks eru 19, meðal helstu viðskiptavina má nefna Ingvar Helgason (Opel, Subaru), 66°Norður, Ölgerðina Egil Skallagrímsson (Pepsi), Hive, 365 ljósvakamiðla (Sirkus o.fl.), Listahátíð í Reykjavík, Glitni (Eignastýring), William Grant & Sons (Reyka vodka), Iceland Airwaves og Háskólann á Bifröst.
Á síðustu Lúðrahátíð ÍMARK hlaut stofan 11 tilnefningar til Lúðurs og einn Lúður (fyrir 66°Norður). Þá hefur stofan einnig í tvö ár hlotið verðlaun í hinni alþjóðlegu Epica auglýsingasamkeppni, fyrir starf sitt með 66°Norður.
Sjá nánar um Jónsson & Le'macks á vefsvæðinu www.jl.is. SÍA félagar bjóða starfsfólk Jónsson & Lemack's velkomið í SÍA.

