"Innihaldið" fær 1. verðlaun
Auglýsingaherferðin „Innihaldið skiptir öllu máli“ sem Hvíta húsið vann fyrir Morgunblaðið hlaut fyrstu verðlaun í auglýsingasamkeppni INMA International Newspaper Marketing Association. Verðlaunin voru veitt fyrir skömmu á heimsþingi INMA í Chicago.

Þetta er í 71. skipti sem INMA verðlaunar bestu markaðsherferðir dagblaða um allan heim en alls tóku 206 dagblöð frá 37 löndum þátt í keppninni. Herferðin hlaut verðlaunin í flokki dagblaða með upplag undir 75 þúsund eintök.

Í umsögn dómnefndar segir að í herferðinni fari saman vel útfærð hugmynd með grafískri framsetningu sem komi beint að kjarna málsins. Auglýsingarnar sem verðlaunaðar voru verða birtar í bókinni Best in Print.