Styrkur veittur úr AUGA
Auglýsingaiðnaðurinn hefur sameinast um sjóð sem hefur það markmið að styðja góð málefni í samfélaginu á markvissan hátt með afli auglýsinga. Sjóðurinn ber nafnið AUGA – auglýsingar, afl til góðra verka. Í lok síðasta árs var auglýst eftir umsóknum í sjóðinn og nú hefur verið valið úr hópi umsækjenda verkefni til að styðja á þessu ári. Það er verkefnið SAFT, á vegum Heimilis og skóla; vitundarvakning um jákvæða og örugga notkun barna, unglinga og fullorðinna á Netinu og tengdum miðlum, s.s. farsímum, nettengdum leikjatölvum o.s.frv.
Stofnendur AUGA eru eftirfarandi:
- Samband íslenskra auglýsingastofa (SÍA)
- Samtök auglýsenda (SAU)
- ÍMARK (Félag íslensks markaðsfólks)
- 365 prent- og myndmiðlar
- Morgunblaðið
- RÚV
- Fróði
Mæling árangurs verður í samstarfi við IMG Gallup á Íslandi.
Til AUGA geta þeir sótt stuðning sem vinna af vanefnum að ýmsum samfélagslegum þjóðþrifamálum, stuðning í formi auglýsingaherferðar, til að kynna sitt starf í samfélaginu. Herferð sem er skipulögð, hugsuð, hönnuð og birt í fjölmiðlum þeim að kostnaðarlausu.
Um SAFT verkefnið
Börn og fullorðnir virðast ekki hegða sér á sama hátt í netheimum og mannheimum. Ljótt orðbragð, nafnlausar svívirðingar og einelti og eru dæmi um þetta og eins dæmin sanna getur óvarleg notkun á internettækninni jafnvel leitt til kynferðislegrar misnotkunar. Það liggur því mikið við að stemma stigu við þeim vanda sem virðist vera í uppsiglingu með óvarlegri notkun á þeirri tækni sem netið, símtæknin og tölvuleikir bjóða upp á.
Umfang vandans hefur ekki verið kortlagt nákvæmlega ennþá en t.d. virðast vera þó nokkuð um net- og farsímaeineltistilfelli í hverjum skóla. Til framtíðar litið gæti vandinn vaxið með tilkomu nýrrar tækni, t.d. þriðju kynslóðar síma. Vandinn er þó ekki tæknilegs eðlis heldur siðferðilegur, spurning um rétt eða rangt, öruggt eða hættulegt.
Sérþekking á boðmiðlun í samfélaginu
Auglýsingafagið býr yfir einstakri þekkingu á boðmiðlun. Þekkingu sem margoft hefur verið beitt í þágu brýnna málefna, eins og dæmin sanna. Stefnt er að því að AUGA standi að a.m.k. einni myndarlegri auglýsingaherferð árlega. Herferð AUGA er ætlað að verða viðbót við það góða starf sem þegar er unnið á þessum vettvangi. Stofur innan vébanda SÍA leggja til vinnu, auglýsendur fjármagn og fjölmiðlar leggja til birtingapláss.
Það eru mörg málefni í samfélaginu sem mögulegt er að efla og styrkja með því að koma þeim í sviðsljósið og ná þannig betra sambandi við almenning eða einstaka hópa. Með því að beita fagþekkingu sinni við markaðssetningu og boðmiðlun getur auglýsingaiðnaðurinn og tengdir aðilar lagt þessum málefnum mikið lið. Stofur innan vébanda SÍA leggja til vinnu, auglýsendur fjármagn og fjölmiðlar leggja til birtingapláss.
Sjóðurinn mun árlega auglýsa eftir umsóknum sem verða metnar faglega, á grundvelli þess hvar auglýsingar muni skila mestum árangri og hversu þörfin er brýn.
Auglýsingaiðnaðurinn vill þannig sinna samfélagslegri skyldu sinni og beita afli auglýsinga til að koma góðum málefnum á framfæri í íslensku samfélagi.
AUGA mun veita þeim sem fá stuðning sjóðsins aðgang að sérfræðiaðstoð við markmiðasetningar, markaðsgreiningar, strategíska mótun markaðsstarfs, skipulag aðgerða, hugmyndavinnu, auglýsingagerð, gerð birtingaáætlana, við miðlun og birtingu auglýsinga og mælingu árangurs.
Ekki fjármagn heldur gjafsókn
Ekki verður afhent fjármagn til umsækjenda heldur fá umsækjendur nokkurs konar gjafsókn. Þeir fá auglýsingherferð um málefni sitt og fjármagn til birtinga auglýsinga í fjölmiðlum á hagstæðu verði. Stefnt er að því að safna 5 – 10 milljónum króna fyrsta árið. Þriðjungur verður eftir í sjóðnum þannig að hann mun eflast og styrkjast til góðra verka með árunum. Vonast er til að hægt verði að styrkja 1-2 málefni á ári með stórum kynningarherferðum.
- Hlutverk SÍA er að virkja auglýsingastofurnar innan sinna vébanda til að leggja sjóðnum lið með vinnu og þekkingu til þeirra verkefna sem sjóðurinn ræðst í.
- Hlutverk SAU og ÍMARK er að virkja auglýsendur til að leggja sjóðnum lið með fjármunum úr styrktarsjóðum eða af markaðsfé sínu.
- Hlutverk fulltrúa fjölmiðla verður að virkja fjölmiðlana til að leggja sjóðnum lið með því að birta auglýsingar frá honum á vildarkjörum.

