Hausverk verður Pipar

Nýjasti aðilinn í SÍA, Hausverk auglýsingastofa, hefur nú breytt um nafn og heitir eftirleiðis Pipar auglýsingastofa.

Helsta ástæðan fyrir nafnabreytingunni, segja eigendur Pipars, er að stofan stendur nú á ákveðnum tímamótum þar sem töluverðar breytingar hafa verið á starfsemi fyrirtækisins að undanförnu.

Stofan hefur verið að stækka og eflast með fleira starfsfólki en nafnið Hausverk er mjög tengt tveimur af eigendum stofunnar og vilja eigendur með nafnbreytingunni undirstrika að Pipar byggir fyrst og fremst á starfsfólki stofunnar í öllu starfi sínu.

Piparmen segja engar rekstrarlegar breytingar verða gerðar og muni Eignarhald ehf. reka og eiga stofuna áfram undir sömu kennitölu.