Tilnefningar til Lúðursins, íslensku auglýsingaverðlaunanna, hafa nú birst í Viðskiptablaði Morgunblaðsins (16. febrúar).
Það er ÍMARK samtök markaðsfólks á Íslandi, sem veitir Lúðurinn árlega á Íslenska markaðsdeginum sem í ár verður haldinn 24. febrúar næstkomandi (www.imark.is). SÍA stofur standa sig vel í tilnefningum að venju með yfir helming af öllum tilnefningum.
Af SÍA stofum fær ENNEMM flestar eða 11 tilnefningar. Hvíta húsið fær 8, Íslenska auglýsingastofan 6, Fíton 7 og Himinn og haf 3.
Athygli vekur gott gengi auglýsingastofunnar Jónsson & Le'macks sem fær 11 tilnefningar. Þá fær Gott fólk McCann 5 tilnefningar og Auglýsingastofan Ó! fær 3 tilnefningar.
Athygli skal vakin á því að hægt er að nálgast lista yfir tilnefnda aðila sem og pdf. skjal af opnunni úr Viðskiptablaði Morgunblaðsins á vef ÍMARK, www.imark.is

