Ný stjórn SÍA
Í kjölfar aðalfundar SÍA (Sambands íslenskra auglýsingastofa) hefur verið kjörin ný stjórn sambandsins. Nýr formaður er Ingvi Jökull Logason (Hér &nú markaðssamskipti). Með honum í stjórn eru Sverrir Björnsson (Hvíta húsið) og Magnús Bjarni Baldursson (Auglýsingamiðlun). Magnús kemur nýr inn í stjórn, Þormóður Jónsson (Fíton) fer úr stjórn og eru honum þökkuð góð störf fyrir SÍA.
Framkvæmdastjóri SÍA er Ingólfur Hjörleifsson.