Hádegisverðarfundur ÍMARK

Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði - hvaða áhrif hefur það?

Hádegisfundur ÍMARK verður haldinn föstudaginn 9. september nk. á Nordica hótel kl. 12.00-13.30.

Yfirskrift fundarins er: Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði - hvaða áhrif hefur það?

Páll Magnússon hefur lýst þessari skoðun sinni og verður fróðlegt að heyra eftir að hann sestur í stól útvarpsstjóra hvort og hvernig hann muni fylgja því eftir.

Þessi skoðun hefur ýtt við mörgum og hafa SÍA og SAU þegar lýst áhyggjum sínum á opinberum vettvangi. Telja að miklir hagsmunir séu í húfi fyrir auglýsendur, markaðinn og hin almenna skattborgara. Svo eru önnur sjónarmið sem vert er að hlusta á. Fundurinn verður því fróðlegur og tækifæri til þess að heyra sjónarmið ásamt sýn á hvaða áhrif breytingarnar kunni að hafa.

Framsögumenn eru:
Páll Magnússon útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins
Ingólfur Hjörleifsson framkvæmdastjóri SÍA
Þorbjörn Broddason prófessor við félagsvísindadeild Háskóla Íslands

Fundarstjóri er Jóhannes Ingi Davíðsson, framkvæmdastjóri ÍMARK

Fundurinn verður haldinn á Nordica hótel og er þátttökugjald 3.300 kr. fyrir félagsmenn Ímark, 4.600 kr. fyrir aðra. Innifalið er léttur hádegisverður og kaffi að hætti Nordica.

Vinsamlegast staðfestið þátttöku með tölvupósti á imark@imark.is