Ríkisútvarpið á eða af auglýsingamarkaði?
Eftirfarandi ályktun var samþykkt á félagsfundi SÍA 24. ágúst.

Í ljósi umræðna undanfarið um stöðu Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði vill félagsfundur SÍA taka fram eftirfarandi:  

Félagsfundur SÍA lýsir miklum efasemdum á þeirri skoðun að RÚV beri að hverfa af auglýsingamarkaði. Ástæða þess er sú að RÚV er öflugur fjölmiðill sem höfðar til stórs hóps neytenda með dagskrá sinni í útvarpi og sjónvarpi. Á meðan svo er málum komið, er það andstætt hagsmunum neytenda og auglýsenda að ekki sé möguleiki að auglýsa í Ríkisútvarpinu. Í nútíma upplýsingaþjóðfélagi ætti það að vera réttur og skylda hvers fjölmiðils að eiga kost á að birta auglýsingar, óháð því hver eignasamsetning miðilsins er. Slíkt er sjálfsögð þjónusta við neytendur, að þeir eigi kost á sem breiðustu upplýsingamagni í þeim miðli sem þeir nota.   

Félagsfundur SÍA tekur ekki afstöðu til þess hvort rétt eða rangt sé að hið opinbera standi í rekstri fjölmiðla sem reknir eru að hluta til á auglýsingafé. Hér er einungis bent á þær aðstæður sem koma upp ef RÚV hverfur af auglýsingamarkaði; aðgangur auglýsenda að stórum hópi landsmanna takmarkast mjög og aðgangur almennings að nauðsynlegum upplýsingum verður þar af leiðandi mun takmarkaðri. Þá er ekki ólíklegt að minni samkeppni á auglýsingamarkaði geti leitt til hækkunar á auglýsingaverði sem aftur geti leitt til hækkunar vöruverðs. 

Hlutverk auglýsinga er fyrst og fremst að vera upplýsingaveita; ; að veita upplýsingum til neytenda, hvort sem um er að ræða upplýsingar um verð og gæði vöru og þjónustu eða almennar upplýsingar sem snerta beint bættan hag almennings og almannaheill. Þær eru því mikilvægur hluti nútímasamfélags.

Brotthvarf RÚV af auglýsingamarkaði myndi því almennt séð skerða þessa sjálfsögðu þjónustu, bæði við almenning og auglýsendur. Því er það skoðun félagsfundar SÍA að hagsmunum auglýsenda og almennings sé betur fyrir komið með óheftu leyfi miðla til auglýsinga sem aftur myndi þýða RÚV áfram á auglýsingamarkaði.Félagsfundur SÍA tekur ekki afstöðu til þess hvort rétt eða rangt sé að hið opinbera standi í rekstri fjölmiðla sem reknir eru að hluta til á auglýsingafé. Hér er einungis bent á þær aðstæður sem koma upp ef RÚV hverfur af auglýsingamarkaði; aðgangur auglýsenda að stórum hópi landsmanna takmarkast mjög og aðgangur almennings að nauðsynlegum upplýsingum verður þar af leiðandi mun takmarkaðri. Þá er ekki ólíklegt að minni samkeppni á auglýsingamarkaði geti leitt til hækkunar á auglýsingaverði sem aftur geti leitt til hækkunar vöruverðs. 

Hlutverk auglýsinga er fyrst og fremst að vera upplýsingaveita; ; að veita upplýsingum til neytenda, hvort sem um er að ræða upplýsingar um verð og gæði vöru og þjónustu eða almennar upplýsingar sem snerta beint bættan hag almennings og almannaheill. Þær eru því mikilvægur hluti nútímasamfélags.

Brotthvarf RÚV af auglýsingamarkaði myndi því almennt séð skerða þessa sjálfsögðu þjónustu, bæði við almenning og auglýsendur. Því er það skoðun félagsfundar SÍA að hagsmunum auglýsenda og almennings sé betur fyrir komið með óheftu leyfi miðla til auglýsinga sem aftur myndi þýða RÚV áfram á auglýsingamarkaði.