Hvíta húsið í útrás í London

Hvíta húsið auglýsingastofa hefur undirritað samstarfssamning við auglýsinga- og samskiptafyrirtækið Loewy Group í London . Með þessum samningi útvíkkar Hvíta húsið starfsemi sína með það að markmiði að þjóna viðskiptavinum sínum enn betur, með vinnustöð í London . Það veitir viðskiptavinum stofunnar aukin tækifæri í alþjóðlegri útrás.

Nýir möguleikar

Hvíta húsið hefur unnið að þessu máli um tveggja ára skeið, að finna hentugan samstarfsaðila erlendis, og naut við það starf ráðgjafar sérfræðinga í London. Í þessu ferli fólst víðtækt mat á auglýsingastofum með ítarlegu ferli viðtala við fulltrúa fjölda auglýsinga- og samskiptafyrirtækja í London.


"Með þessu samstarfi við Loewy opnast Hvíta húsinu og viðskiptavinum stofunnar ýmsir möguleikar", segir Halldór Guðmundsson, framkvæmdastjóri Hvíta hússins. "Margir af viðskiptavinum stofunnar starfa nú þegar á erlendum vettvangi og Hvíta húsið hefur í mörgum tilfellum komið að því starfi. Nú erum við enn betur í stakk búnir til að sinna þessum hluta starfsins og styðja fleiri fyrirtæki í frekari útrás. Viðskiptavinir Hvíta hússins geta nýtt sér það tengslanet sem er fyrir hendi hjá Loewy Group, t.d. með aðgengi að gagnagrunni Loewy, rannsóknum á nýjum mörkuðum og sérfræðiráðgjöf um breska markaðinn", segir Halldór.


Ómetanleg reynsla fyrir starfsfólkið

Samstarfið felur m.a. í sér að íslenskt starfsfólk Hvíta hússins verður staðsett stöðugt í London við vinnu sína fyrir viðskiptavini. Magnús Loftsson hjá Hvíta húsinu segir fjölmarga viðskiptavini stofunnar stöðugt leita tækifæra á erlendum vettvangi. "Starfsfólk Hvíta hússins fær ómetanlega reynslu fyrir tilstilli þessa samstarfs við leiðandi fyrirtæki á sínu sviði í London. Við áætlum að eiga blómlegt og skapandi samstarf með skiptum á hugmyndum jafnt sem starfsfólki. Þetta verður auðvitað eins og vítamínsprauta inn í Hvíta húsið og ætti ekki síður að verða örvandi fyrir viðskiptavini okkar", segir Magnús.


Rík hefð hjá Loewy

Loewy var stofnað fyrir 75 árum af iðnhönnuðinum Raymond Loewy í New York. Loewy er oft lýst sem föður nútíma iðnhönnunar. Loewy fyrirtækið vann m.a. að hönnun og endurhönnun vörumerkja á borð við Coca-Cola, Lucky Strike, Shell og innanrýmis Concorde.


Fyrirtækið var selt árið 1986 til stjórnunarteymis sem staðsett var í London. Í mars 2004 komu nýir aðilar að rekstri Loewy og í dag vinnur Loewy Group fyrir athyglisverðan hóp viðskiptavina. Þar má nefna
Nestle, B&Q, BAA, Computacenter, BT, Oxford University, Kimberly-Clark, Hitachi og Shepherd Neame.


Lowey býður heildarþjónustu með áherslu á samþættingu vörumerkjaþróunar, hönnunar og markaðsmála. Innan Loewy starfa hópar sem vinna að umbúðahönnun og framleiðslu, vörumerkjaímynd, almannatengslum, almennri auglýsingagerð og hugmyndavinnu. Einnig beinni markaðssetningu, stafrænni markaðssetningu og hvers kyns markaðsfærslu í smásölugeiranum.
Hjá Loewy starfa um 100 manns á tveimur stöðum í London

Loewy Group hyggur á frekari stækkun á þessu ári. Seint á síðasta ári bættust þrír nýir vinnuhópar í Loewy Group, fyrst of fremst fyrir tilstilli athafnamannsins Luke Johnson sem er stjórnarformaður Loewy Group en hann er einnig stjórnarformaður Channel 4 sjónvarpsstöðvarinnar.