Þögnin rofin: "Tjáðu þig" valin besta herferðin

Verðlaunahafar í auglýsingasamkeppninni Þögnin rofin.

Rósa Hrund Kristjánsdóttir hjá Hvíta húsinu fyrir miðju (Besta herferðin) ásamt starfsfólki Fítons (Besta staka auglýsingin og sérstök verðlaun). Formaður SÍA, Þormóður Jónsson, er lengst til hægri.

Verðlaun voru veitt í auglýsingasamkeppni SÍA, ”Þögnin rofin” í Listasafni Reykjavíkur á föstudaginn 8. apríl við opnun sýningar á innsendingum í keppnina. Veittar voru viðurkenningar fyrir bestu herferðina og bestu stöku auglýsinguna, auk þess ”Sérstök verðlaun” fyrir athyglisverða auglýsingu. Þar að auki vakti dómnefndin, sem skipuð var 3 enskum auglýsingamönnum, athygli á 7 öðrum innsendingum sem henni fannst standa fram úr.


”Tjáðu þig” (Speak Up) var valin besta herferðin (höfundur Rósa Hrund Kristjánsdóttir, grafískur hönnuður á Hvíta húsinu). Besta auglýsingin var frá hópi fólks á Fíton auglýsingastofu sem fjallaði um þjóðarátak gegn fátækt. Dómnefndin veitti einnig sérstök verðlaun hópi frá Fíton sem gerði auglýsingu um stöðu nýbúa á Íslandi og fordóma gagnvart þeim.

Sýning á innsendingum stóð yfir í viku Listasafni Reykjavíkur eftir að úrslit voru tilkynnt.

Fyrir þá sem ekki sáu sýninguna verða innsendingar verða birtar hér á www.sia.is innan tíðar.