Nýr vefur SÍA

www.sia.is hefur opnað dyr sínar á nýjum stað í nýjum fötum. Á netinu er heimilisfangið það sama en heimilið hefur verið tekið í gegn enda hafði nánast engu verið breytt frá því vefurinn var opnaður fyrir næstum 10 árum. www.sia.is hefur á þessum tíma þjónað hlutverki sínu vel sem upplýsingaveita fyrir fagfólk, námsfólk og aðra en vissulega var kominn tími til breytinga.


Miðað er við að vefurinn sé sem einfaldastur og aðgengilegastur og hann verði sömuleiðis eins "lifandi" og aðstæður eru til. Á vefnum verða m.a. fréttir af því nýjasta í faginu, tenglar á nýjustu afurðir SÍA stofanna og greinar um forvitnileg mál í faginu.