Samband íslenskra auglýsingastofa (SÍA) er samtök 7 stærstu auglýsingastofa landsins auk 2 birtingastofa. SÍA starfar sem málsvari og fulltrúi þessara fyrirtækja í öllum helstu sameiginlegu hagsmunamálum þeirra.
Hlutverk SÍA er meðal annars:
- að auka hæfni aðildarfyrirtækja til þess að veita sem fullkomnasta þjónustu
- að annast almenna kynningarstarfsemi til þess að auka þekkingu og skilning á auglýsingafræðum og starfsemi auglýsingastofa
- að koma fram fyrir hönd aðildarfyrirtækjanna gagnvart opinberum aðilum, hagsmunasamtökum og hliðstæðum samtökum erlendis
SÍA er aðili að Sambandi norrænna auglýsingastofa (NRF) og í Evrópusambandi boðskiptafyrirtækja (EACA).
Aðilar að SÍA geta orðið auglýsingastofur, sem veita fulla þjónustu. Í því felst m.a:
- Auglýsingastofan sér um allar þarfir viðskiptavina sinna;
o gerð auglýsingaáætlana
o útfærsla þeirra bæði hvað varðar gerð hvers konar augýsinga og annarra skyldra verka
o gerð birtingaáætlana og pöntun og umsjón með þeim
o varðveisla gagna viðskiptavinar
o fjárhagsleg ábyrgð á öllum stigum framleiðslu og birtinga gagnvart þriðja aðila.
Auglýsingastofur innan SÍA skuldbinda sig til að starfa í fullu samræmi við siðareglur Alþjóðaverslunarráðsins um auglýsingar auk landslaga og reglugerða, sem stjórnvöld setja.

