17.2.2006
Breytt lagaumhverfi fyrir auglýsingafólk
Grein eftir Jón Örn Marinósson textahöfund (málsvara) á Íslensku auglýsingastofunni sem hann skrifaði á vefsvæði Íslensku auglýsingastofunnar (www.islenska.is) Jón Örn er einn reyndasti auglýsingamaður landsins og því er hollt fyrir auglýsingafólk að lesa könnun hans á nýju lögunum. Lögin í heild sinni er að finna hér á sia.is undir hnappnum Lög og reglur > Samkeppnislög. meira ->

5.4.2005
Stefnumótandinn - brú og flutningabíll í senn
Stefnumótendur (Strategic Planner) hafa verið til í yfir 30 ár. Það sama er þó ekki hægt að segja í íslensku viðskipta-samskiptasamfélagi. Það má lengi rökræða hvert sé mikilvægasta starfið á auglýsingastofum í dag en vel er hægt að færa fyrir því rök að stefnumótandinn sé þar í efstu sætunum. Þó er athyglisvert að ekkert formlegt stöðugildi er á íslenskum auglýsingastofum sem ber þetta heiti formlega. En hvaða dýrategund er þetta eiginlega? Nafnið sjálft er þrungið mikilvægi. Stefnumótendur eru innst í hvirfilbylnum og hann/hún getur mögulega haft úrslitaáhrif á það hvernig viðskiptavininum vegnar næstu misserin. Nafngiftin er rétt og nákvæm, þar sem stormur ríkir. Á auglýsingastofum á að vera hvassviðri. Þar á fólk að takast á, rífast uppbyggilega, takast á um auglýsingar, bækur, málefni, tónlist, en umfram allt hugmyndir.
meira ->

5.4.2005
Lausnin á offituvanda barna felst ekki í ritskoðun
Það hefur sjaldan þótt árangursríkt í samræðu að líma fyrir munninn á þeim sem rætt er við. Sömuleiðis telst það ekki góð leið til úrbóta að líma fyrir augun á fólki. Ritskoðun á að vera síðasta úrræði þegar leitað er leiða til að bæta samfélag okkar, ekki upphafsaðgerð. meira ->

5.4.2005
Auglýstu skoðun þína
Undanfarið hafa miklar umræður átt sér stað í samfélaginu um þá nýjung hér á landi að birta "íslenska" auglýsingu í erlendum stórblöðum. Hópur Íslendinga hyggst birta auglýsingu í New York Times sem kynnir afstöðu hóps Íslendinga til Íraksmálsis og afstöðu almennings og stjórnvalda á Íslandi. meira ->