Cannes Lions
The Cannes Lions Internarional Advertising Festival er líklega stærsti viðburður heims þegar kemur að auglýsingum og samskiptamálum. Hátíðin er haldin í Cannes í júní ár hvert og fer sífellt stækkandi. Sumarið 2008 voru á hátíðinni meira en 10.000 þátttakendur frá 85 löndum og þar tóku yfir 28.000 verk þátt. Árlega er þar að finna heimsþekkta fyrirlesara innan greinarinnar. Hátíðin er einnig kjörin staður til að læra og kynnast nýju fólki.

SÍA  hefur nú gerst fulltrúi keppninnar hér á Íslandi.

Keppnin var fyrst haldin árið 1954 og var Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Cannes henni fyrirmynd, en sú hátíð hafði verið haldin í nokkur ár. Fyrsta hátíðin  var þó haldin í Feneyjum og hefur hátíðin síðan kennt sig við ljónið á San Marco torgi (Piazza San Marco) þar í borg. Næst var hátíðin haldin í Monte Carlo og sú þriðja í Cannes árið 1956 og hefur verið haldin þar síðan.
Sjá meira um hátíðina...