Fimmtudaginn 25. nóvember kl 13:00-18:00 verður haldin ráðstefna
í Háskólanum í Reykjavík um jákvæð áhrif opinna samskipta á líf einstaklinga.
12 áhugaverðir fyrirlesarar, sérfræðingar í opnum samskiptum hver á sínu sviði, nálgast viðfangsefnið hver með sínum hætti í 15 mín. framsöguerindi. Auk þess gefst tóm til fyrirspurna í lok hvers erindis. Ráðstefnan er öllum opin.
Nánari upplýsingar: Ingólfur Hjörleifsson, framkvæmdastjóri SÍA (ingolfur@sia.is – 862 8339)
Staður: Háskólinn í Reykjavík (salur 101).
Tími: Fimmtudagur 25. nóvember kl. 13-18.
Nokkur dæmi um fyrirlestra:
Þorvaldur Þorsteinsson rithöfundur, myndlistarmaður og formaður Bandalags íslenskra listamanna:
"Opin samskipti um hvað?"
Hvern? Hverja? Nokkur orð um sjálfsþekkingu í upplýsingasamfélagi.
Guðrún Frímannsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur
"Að sjá barnið"
Þórkatla Aðalsteinsdóttir sálfræðingur:
"Þörfin til að tjá sig - leit að spegli!"
Við tölum til að heyra í okkur sjálfum og öðrum um okkur sjálf!!
Guðrún Jónsdóttir upplýsinafulltrúi Stígamóta:
"Það þarf að vera móttakari sem hlustar."
Magnús Diðrik Baldursson heimspekingur.
"Drottnun einkalífsins"
Tengsl opinberra samskipta og einkasamskipta.
Elísabet Jökulsdóttir skáld
"Silkisængurver og bla bla bla"
Enginn sannleikur um samskipti

