Þögnin rofin um sigurvegara

Fimmtudaginn 8. apríl kl. 17 verða tilkynnt úrslit í samkeppni SÍA, "Þögnin rofin" samkeppni um auglýsingar sem hvetja fólk til að leita lausnar á vanda sínum með því að tjá sig.

Alls bárust 70 innsendingar í samkeppnina. Dómnefnd skipuð enskum auglýsingamönnum valdi bestu herferðina, bestu auglýsinguna og veitti tvenn sérverðlaun, auk þess að viðurkenna 7 aðrar innsendingar sem athyglisverðar.

(Sjá nánar um samkeppnina á www.sia.is)

Samband íslenskra auglýsingastofa býður þér að vera við afhendingu verðlaunanna þann 8. apríl Kl. 17 – 18:30 í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi.

Dagskrá:

- Þrjú 10 mín. erindi um auglýsinga- og samskiptafagið:

  • Nick Barham, Yfirmaður stefnumótunar hjá Karmarama auglýsingastofu í London.
  • Alistair Campbell, Stjórnandi skapandi vinnu hjá St. Lukes auglýsingastofu í London.
  • Þorvaldur Þorsteinsson, myndlistarmaður, formaður Bandalags ísl. listamanna og fyrrverandi hugmyndasmiður auglýsinga.

Verðlaun veitt:

Hamish Pringle, framkvæmdastjóri IPA (Samtök enskra auglýsingastofa) og formaður dómnefndar, veitir verðlaun og ræðir um innsendingar í samkeppnina.

Sýning á innsendingum í samkeppnina stendur til 14. apríl í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi.

Léttar veitingar í boði.