Takk – Auglýsingaherferð Mannréttindaskrifstofu Íslands og Auga.

Markmiðið með átakinu er að vinna gegn fordómum gegn innflytjendum á Íslandi og vekja fólk til umhugsunar um það jákvæða sem fjölmenning hefur í för með sér fyrir íslenskt samfélag.
Herferðin felst í að þakka innflytjendum opinberlega fyrir að auðga mannlíf og menningu landsins og að taka þátt í að byggja hér upp fjölbreytt og öflugt samfélag.

Auglýsingaherferðin stendur í tvær vikur í sjónvarpi, blöðum og tímaritum, strætóskýlum og á netinu.
Herferðin, sem er á vegum Mannréttindaskrifstof Íslands er unnin í sjálfboðavinnu af auglysingastofum innan Sambands íslenskra auglýsingastofa, SÍA.  Árvakur, Fréttablaðið, Afa JCDecaux, Sjónvarpið, Stöð 2, Skjár einn, Mbl.is og Vísir.is munu birta herferðina og Capacent vinnur rannsóknarvinnu tengda átakinu.

Mannréttindaskrifstofa Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands er óháð stofnun sem vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. Mannréttindaskrifstofan hefur það markmiði að uppræta fordóma og skort á umburðarlyndi og stuðla að samfélagi þar sem allir eiga jöfn tækifæri.

www.mannrettindi.is